Þú ert hér://Tag: Kolbeinn Arnbjörnsson

„Vaðlaheiðargöng eru æði“

2024-02-19T10:38:02+00:003. febrúar 2024|

Það er eiginlega óhjákvæmilegt að hugsa til skessunnar í ævintýrinu um Búkollu þegar maður veltir Vaðlaheiðargöngum fyrir sér, mestu framkvæmd Íslandssögunnar, eins og segir i kynningu á leikritinu um hana, Vaðlaheiðargöngum, sem frumsýnt var á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi á vegum leikhópsins Verkfræðinga. Hljóðheimur Gunnars Karels Mássonar sem mætti okkur gat á köflum vel [...]

Ástin á tímum tölvuleikjanna

2019-05-27T15:58:31+00:002. desember 2017|

Sá skemmtilegi og frumlegi leikhópur Sómi þjóðar frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó nýtt verk, SOL, byggt á sannri sögu. Höfundar eru að venju þeir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson sem leikstýrir að þessu sinni en leikur ekki í sýningunni. Hann á líka búningana og frábæra leikmynd ásamt Valdimar Jóhannssyni en Valdimar hannar ljós ásamt Hafliða [...]

Þögnin í genunum

2019-04-30T14:44:51+00:0010. apríl 2017|

Þrír ungir menn standa á gólfinu í Mengi við Óðinsgötu í Reykjavík og horfa áhugasamir á áhorfendahópinn. Þeim liggur greinilega eitthvað á hjarta en orðin láta á sér standa. Þeir opna munninn – en loka honum aftur, tala til okkar með augunum, líta hver á annan, ræskja sig, anda, andvarpa, við bíðum en það kemur [...]

Að taka síma í fóstur

2019-05-08T10:03:10+00:0024. maí 2016|

Það er alltaf gaman að fá að kynnast nýjum eða nýlegum erlendum leikverkum eftir okkur áður ókunna höfunda. Ekki er verra þegar eins vel tekst til með uppsetninguna og hjá Charlotte Bøving í gærkvöldi þegar leikritið Sími látins manns var frumsýnt í Tjarnarbíó. Það verk er að vísu að verða tíu ára (frumsýnt í Washington [...]

Leikur að steinum

2019-05-10T15:08:43+00:0031. október 2015|

Við fórum loksins að sjá Petru, sýningu hópsins Dansaðu fyrir mig, í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Sá sem hefur séð fyrri sýningu hópsins, sem heitir einmitt Dansaðu fyrir mig, veit að það þarf að koma í leikhúsið með ákveðið hugarfar. Ekki búast við neinu sem flokkast undir venjulegt eða hefðbundið. Hópurinn vinnur á einhverjum mörkum veruleika [...]

Listamaðurinn býr enn í helli sínum

2019-05-16T15:56:56+00:0018. september 2015|

Kolbeinn Arnbjörnsson skapar flókinn en þó heillegan og trúverðugan karakter í einleiknum Frama eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýndur var á Lókal og Reykjavík Dance Festival en er nú sýndur í Tjarnarbíó á vegum hópsins TAKATAKA. Björn Leó leikstýrir sjálfur og sér líka um tónlistina í sýningunni en sér til aðstoðar við sviðsetninguna hefur hann [...]

Þrjár systur – og bróðir

2019-05-27T13:41:56+00:0017. september 2014|

Það var sannarlega gaman að sjá þær saman á sviði í Tjarnarbíó í gærkvöldi Margréti Guðmundsdóttur, Önnu Kristínu Arngrímsdóttur, Guðbjörgu Thoroddsen (Bauju) og Halldóru Björnsdóttur. Nokkur tími er síðan þessar konur sáust leika en þær hafa að sjálfsögðu engu gleymt. Sýningin var á Róðaríi, nýju fjölskyldudrama eftir Hrund Ólafsdóttur, og leikstjóri var Erling Jóhannesson. Konurnar [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]