Þú ert hér://Tag: Karl Olgeirsson

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

Upplausn í úthverfinu

2024-02-26T12:03:56+00:0024. febrúar 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær á stóra sviði Borgarleikhússins bandaríska söngleikinn Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morissette og Diablo Cody, í þýðingu Ingólfs Eiríkssonar og Matthíasar Tryggva Haraldssonar og undir stjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Hljómsveitarstjóri er Karl Olgeirsson.  Söguna samdi Cody upp úr hljómplötunni Jagged Little Pill eftir Morissette sem kom út 1995 en söngleikurinn [...]

Orkusprengjan Fíasól

2023-12-06T16:11:21+00:003. desember 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær barnaleikritið Fíasól gefst aldrei upp á stóra sviðinu. Textinn er unninn upp úr fimm geysivinsælum bókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem komu út á tímabilinu 2004–2018, og ekki er það síst síðasta bókin, samnefnd leikverkinu, sem setur svip sinn á sýninguna. Leikgerðina unnu þær Maríanna Klara Lúthersdóttir og Þórunn Arna [...]

Sælla er að gefa en þiggja

2022-11-28T15:34:10+00:0027. nóvember 2022|

Þau voru að sprengja enn eina gleðisprengjuna í Gaflaraleikhúsinu, Jól á náttfötunum eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem þeir leika líka ásamt Karli Olgeirssyni píanóleikara. Lögin smellnu semja þeir Jón Ólafsson og Máni Svavarsson, ljósunum sem taka fullan þátt í sýningunni stýrir Freyr Vilhjálmsson og leikstjóri er að sjálfsögðu Björk Jakobsdóttir sem líka sér [...]

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

Ys og þys út af ástinni

2019-10-11T13:50:02+00:0011. október 2019|

Vegir hugverkanna eru margir og margvíslegir. Oftast fara þó skáldsögur upp á svið eða í bíó en líka kemur fyrir að bíómyndir fara upp (eða niður) á leiksvið. Shakespeare verður ástfanginn byrjaði með handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard í kvikmynd sem naut mikilla vinsælda og hlaut ótal verðlaun og viðurkenningar. Þessa bíómynd lagaði [...]

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]