Þú ert hér://Tag: Kári Viðarsson

Að vera eða vera ekki pabbi

2023-02-15T14:02:02+00:0013. febrúar 2023|

Þjóðleikhúsið endurfrumsýndi um helgina leiksýningu Kára Viðarssonar og Maríu Reyndal Prinsinn á Litla sviðinu í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Þar var verkið einmitt heimsfrumsýnt síðastliðið vor og síðan hefur það ferðast um landið. Það er gott til þess að vita að margir hafi fengið tækifæri til að sjá það því að þetta er þörf [...]

Kjötkveðjuhátíð á Rifi

2019-05-03T15:50:53+00:004. janúar 2017|

Það er einkar viðeigandi að setja upp leiksýningu byggða á skáldsögu franska rithöfundarins Jules Verne um leyndardóma Snæfellsjökuls í Frystiklefanum á Rifi undir Jökli. Journey to the Center of the Earth var frumsýnd milli jóla og nýárs undir stjórn Árna Kristjánssonar og við fórum í gær í kyrru og fallegu vetrarveðri að sjá hana. Leikið [...]

Þrútið loft og þungur sjór

2019-05-22T11:17:10+00:008. febrúar 2015|

Hún var eins ekta og hún gat orðið, umgjörðin utan um jólasýningu Frystiklefans á Rifi, Mar, þegar við sáum hana í gær. Rokið burstaði öldurnar við norðurströnd Snæfellsness eins og það vildi hindra að þær næðu landi og hristi um leið bifreiðina óþyrmilega til á veginum. Ég hefði ekki viljað vera úti á sjó. Inni [...]

Skoplega dapurt trúðlíf

2019-06-19T11:57:33+00:0015. júlí 2012|

Það er skínandi góð hugmynd hjá forráðamönnum (eða –manni) Frystiklefans á Rifi á Snæfellsnesi að endurvekja Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason. Hann var áður sýndur af Leikfélagi Íslands í Iðnó árið 2000 og fékk ágætar viðtökur ef ég man rétt. Annar trúðanna þá, Halldór Gylfason, er leikstóri núna á Rifi, og honum tekst að minnsta [...]

Leikur einn

2019-08-23T16:27:03+00:0025. júní 2011|

Bárðar saga Snæfellsáss er safn ævintýralegra sagna af mönnum, tröllum og vættum. Við margar sagnanna kemur frændalið norska hálfrisans Bárðar Dumbssonar sem seinna fékk auknefnið Snæfellsás, en einkum hann sjálfur, Helga dóttir hans og Gestur sonur hans. Úr þessum sagnafans hefur Kári Viðarsson unnið einleikinn Hetju sem hann hefur sýnt á nokkrum stöðum og nú [...]

Vaknandi vitund

2019-08-24T12:36:07+00:001. apríl 2011|

Vorið vaknar eftir þýska leikskáldið Frank Wedekind er hvalreki fyrir ungt áhugafólk um leiklist eins og nemendur í Kvennaskólanum sýna fram á þessa dagana. Leikfélag þeirra Fúría sýnir nú þetta rösklega aldargamla leikrit í skólanum sínum við Þingholtsstræti í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og undir stjórn Kára Viðarssonar og túlkun krakkanna á kvíða, kvöl og alsælu [...]

Ævintýri Dísu ljósálfs

2019-09-05T21:53:04+00:0024. október 2010|

Það er erfitt að ímynda sér örlagasögur barna úr nútímanum sem jafnist á við átakanlega hrakfarasögu Dísu litlu ljósálfs sem allir Íslendingar þekkja. Hún villist að heiman og lendir fyrst í vondri vist hjá mennskum hjónum, skógarhöggsmanni og konu hans, síðan í óhugnanlegri barnaþrælkun lengst ofan í jörðinni hjá moldvörpu; þaðan bjarga froskar henni og [...]