Þú ert hér://Tag: Jón Svavar Jósefsson

Brúðkaup á vínekrunni

2025-02-04T16:30:12+00:003. febrúar 2025|

Kammeróperan frumsýndi í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart. Texta Da Ponte þýddi Bjarni Thor Kristinsson og aðlagaði stórskemmtilega auk þess sem hann leikstýrir uppfærslunni. Tíu manna hljómsveit er bakatil á sviðinu og tónlistarstjóri er Elena Postumi. Leikmyndina hannaði Eva Björg Harðardóttir, Andri Unnarson sá um búninga en lýsingin var í [...]

Þegar menningarheimar rekast á

2023-03-06T09:10:10+00:005. mars 2023|

Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi vinsæla óperu Puccinis frá 1904, Madama Butterfly, með kóresku sópransöngkonunni Hye-Youn Lee í aðalhlutverki. Leikstjórinn Michiel Dijkema gerði einnig leikmyndina sem var eins og klassísk smámynd frá Japan í gamla daga með hænsnastiga og bonsai-tré og allt. Hljómsveitarstjóri var Levente Török, Magnús Ragnarsson stjórnaði kórnum, María Th. Ólafsdóttir skapaði öllum [...]

„Á morgun mun hún elska mig!“

2021-10-22T13:38:41+00:0022. október 2021|

Gamanóperan Ástardrykkurinn eftir Donizetti var frumsýnd í Mílanó árið 1832 en er ennþá frísk og fjörug þrátt fyrir háan aldur, í það minnsta í meðförum sviðslistahópsins Óðs í Þjóðleikhúskjallaranum. Þau laga hana að sýningarstaðnum, láta hana gerast á kaffihúsi þar sem ein persónan vinnur og aðrar persónur eiga leið um. Snilldarhugmynd. Sviðið er á dansgólfinu [...]

Sungið um feðginasamband og plast

2019-03-13T16:20:07+00:0025. október 2018|

Áður en ég hlýddi á Plastóperuna eftir Gísla Jóhann Grétarsson og Árna Kristjánsson með fimmta bekk Laugarnesskóla í gærmorgun var ég viðstödd morgunsönginn í skólanum með öllum börnunum – í fyrsta skipti síðan ég kvaddi þennan skóla fyrir sextíu og einu ári! Þau sungu skólasönginn (sem var ekki til í minni tíð) og tvö falleg [...]

Í afahúsi

2019-05-22T10:53:51+00:001. mars 2015|

Það var snilldarhugmynd hjá Elínu Gunnlaugsdóttur að búa til söngleik utan um ljóð Þórarins Eldjárn í bókinni Gælur, fælur og þvælur og útkoman er bæði skemmtileg og elskuleg eins og gestir í Tjarnarbíó fengu að sjá í gær á sýningunni Björt í sumarhúsi. Ágústa Skúladóttir leikstýrir, Kristína R. Berman sér um leikmynd og búninga og [...]

Heima er best

2019-05-27T16:19:33+00:0010. júlí 2014|

Það er skammt stórra högga á milli á íslensku óperusviði því í gær var í fyrsta sinn flutt í Reykjavík ný barnaópera eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson. Hún heitir Baldursbrá og segir sögu af háskalegu ævintýri blóms sem þó endar vel. Óperan var frumflutt á Siglufirði á þjóðlagahátíð fyrr í mánuðinum undir stjórn tónskáldsins [...]

Hundalíf

2019-06-18T11:25:19+00:0020. mars 2013|

Það er dáldið æðislegt sem leikhópurinn Fullt hús hefur gert við Þjóðleikhúskjallarann fyrir sýningu sína Hundalógík. Þau leika á miðju dansgólfinu og raða stólum allan hringinn í kringum sig. Þau hafa ekki pláss fyrir voðalega marga áhorfendur með þessari uppsetningu enda spila þau algerlega upp á nándina og hún verður þeirra styrkur þó að þau [...]

Heimsfrægð eða dauði

2020-01-24T16:32:12+00:007. maí 2010|

Ég fór að sjá nýjasta Hugleikinn í gærkvöldi í nýju húsnæði þess ágæta áhugamannaleikfélags úti í Örfirisey, Rokk. Það var alveg þreföld ánægja. Í fyrsta lagi að þessi yndislegi hópur skuli vera kominn með “eigið” húsnæði (þó að stólarnir séu ekki góðir við gömul bök og rassa), í öðru lagi að ný kynslóð skuli vera [...]

Hláturinn lengi lifi

2020-01-31T15:01:35+00:0016. maí 2009|

Ég fékk góða útrás fyrir hláturþörfina í vikunni. Á fimmtudagskvöldið sá ég Kristján Ingimarsson leika listir sínar í Kassanum í sýningu sinni Creature - og hvílíkar listir! Og í gærkvöldi horfði ég á söguna gömlu um Sigríði og Indriða lifna við enn einn ganginn hjá Hugleik á Smíðaverkstæðinu í leikritinu Ó, þú aftur. Ég veit ekki hvort Jón [...]