Þú ert hér://Tag: Jón Páll Eyjólfsson

Kynusli á litla sviðinu

2019-05-06T14:59:23+00:008. október 2016|

Það var sérstæð blanda af rokktónleika- og árshátíðarstemningu á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi þegar Hannes og Smári héldu þar tónleika og sögðu sögu sína fyrir fullu húsi af æstum aðdáendum. Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leika þessa heiðursmenn, þær spila líka á hljóðfæri og syngja. Auk þess sömdu þær verkið með leikstjóra sínum, [...]

Karlafræðarinn

2019-05-27T13:18:53+00:006. október 2014|

Huldar Breiðfjörð virðist hafa sett sér það verkefni að kafa í sálarlíf íslenskra karla og athuga hvað hann kemur upp með. Nýséð (tvisvar í mínu tilviki) er kvikmyndin París norðursins þar sem fjórir karlmenn eru undir misnákvæmri smásjá (og einn karlmaður in spe á hliðarlínunni) og í gær sáum við Gauka á Nýja sviði Borgarleikhússins [...]

Sagan af pabba

2019-06-04T08:26:16+00:0012. apríl 2014|

Valur Freyr Einarsson vill segja sögur á leiksviðinu, mikilvægar sögur, sögur sem skipta máli. Sagan hans um eina „svarta barnið“ á Suðurnesjum í verðlaunasýningunni Tengdó var bæði brýn og óvænt og hafði sterka skírskotun til samtímans. Sagan sem hann segir í Dagbók jazzsöngvarans, sem CommonNonsense frumsýndi á nýja sviði Borgarleikhússins í gær undir stjórn Jóns [...]

Amlóði fer enn á kreik

2019-06-12T11:34:40+00:0012. janúar 2014|

Þá er það opinbert: Ólafur Darri Ólafsson er kominn í röð þeirra stærstu í sínu fagi, að minnsta kosti hér á landi. Hann er einhver besti og mest sannfærandi Hamlet sem ég hef séð á sviði og sýning Jóns Páls Eyjólfssonar á verkinu sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi hefur alla burði [...]

Fangar hrunsins

2019-06-18T12:24:55+00:002. febrúar 2013|

Í leikritinu Nóttin nærist á deginum sem var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi notar höfundurinn, Jón Atli Jónasson, tvö ágeng fréttaefni frá síðustu árum og fléttar þau saman. Þetta eru annars vegar hrunið sem hefur skilið hjónin í verkinu eftir á eins konar eyðiey, í hálfkláruðu húsi í hverfi sem aldrei var byggt, [...]

Að gæta bróður síns

2019-06-18T17:31:31+00:0030. desember 2012|

Þær voru ólíkar eins og stundum áður jólasýningar stóru leikhúsanna í Reykjavík. Í Macbeth Þjóðleikhússins var stílfærsla í algleymingi með tilfærslu í tíma og allt; í Músum og mönnum Leikfélags Reykjavíkur á stóra sviði Borgarleikhússins ríkir hefðbundið raunsæi, svo rækilega útfært að jaðrar við ofurraunsæi. En mig langar til að segja það strax að eftirbragðið [...]

Saga tengdamömmu

2019-07-24T19:26:18+00:0030. mars 2012|

Leikhópurinn Common Nonsense frumsýndi heimildarleikinn Tengdó á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar, og ég verð að segja að langt er síðan leiksýning kom mér jafnmikið á óvart. Í fyrsta lagi er ekki algengt að verk fjalli opinskátt um eina raunverulega manneskju, ennþá óalgengara er að sú manneskja sé lifandi og [...]

Saga konunnar sem söng

2019-08-08T17:52:05+00:0027. janúar 2012|

Ég vissi ekkert um Eldhaf eftir Wajdi Mouawad áður en ég fór á frumsýninguna á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og það reyndist vera svo áhrifamikið – að vita ekki neitt fyrirfram – að mér er skapi næst að segja ekkert um verkið eða höfund þess í þessum pistli. Láta duga að hvetja alla sem [...]

Kannski verður ljós

2019-08-23T15:44:54+00:0011. september 2011|

Gamli róttæklingurinn í mér er vel nærður eftir þessa helgi. Fyrir utan fimmtu sinfóníu Sjostakovitsj sem þykir ansi róttæk og Hertu Müller og Ingo Schulze sem töluðu af eigin reynslu um líf undir harðstjórn á Bókmenntahátíð í Reykjavík sá ég Zombíljóðin í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið, “alvöru gagnrýnið samtímaverk” eins og segir í leikskrá, og Ge9n, [...]

Ljótar sögur af óþekkum krökkum

2019-08-24T12:24:40+00:0026. mars 2011|

Fyrsta sögubókin sem var gefin út handa íslenskum börnum hét Sumargjöf handa börnum og kom út 1795. Í henni voru margar móralskar sögur af óþekkum börnum sem hefndist grimmilega fyrir að hrekkja, heimta, vera matvönd eða frek, lygin, forvitin, fælin og þver. Bókin var þýdd úr þýsku og það er einmitt uppeldisfræði af hennar tagi [...]