Þú ert hér://Tag: Högni Egilsson

Pabbi minn er kona

2019-05-03T15:09:46+00:0014. janúar 2017|

Hannes Óli Ágústsson sýnir dirfsku með því að stíga fram og segja sögu sína og föður síns á Litla sviði Borgarleikhússins í sýningunni Hún pabbi. Þetta er einlæg og lágstemmd sýning eins og hæfir því viðkvæma efni sem hún fjallar um. Hannes Óli var um tvítugt þegar hann sá óvart mynd í heimilistölvunni sem var [...]

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-08T15:31:29+00:003. apríl 2016|

Það voru áhöld um það um tíma í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi hvort aðeins þeim réttu hefði verið hleypt inn. Talsvert var um tvísölu á sætum, að því er virtist, og tafðist sýningin á Hleyptu þeim rétta inn um fáeinar mínútur meðan greitt var úr vandanum. Það var eins og miðasölukerfi leikhússins væri að grínast með [...]

Við áttum okkur á því

2019-05-08T17:13:36+00:005. febrúar 2016|

Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvers konar fólk fyllir raðir ofstækismanna sem nú vaða uppi víða um lönd og mótmæla móttöku flóttamanna og öðrum skyldum mannúðarmálefnum þá ættuð þið að sjá sýninguna Old Bessastaðir í Tjarnarbíó. Þetta er nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur sem æpir beint inn í samtímaumræðuna og það er Sokkabandið [...]

Arfur fortíðar

2019-05-17T16:08:34+00:0028. mars 2015|

Sokkabandið frumsýndi nýtt leikrit eftir Kristínu Eiríksdóttur í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins, Hystory, undir stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Titillinn er væntanlega leikur að gríska orðinu „huster“, sem þýðir leg og er stofninn í hinu vinsæla orði hystería yfir sefasýki eða móðursýki, og svo enska orðinu „history“ eða sagnfræði. Titillinn er markviss: þetta er geðveik [...]

Kolumkilli var hér

2019-05-22T12:30:18+00:0027. desember 2014|

Byrjunin á sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu er bæði snjöll og áhrifarík. Þó sést í útgefinni leikgerð að handritshöfundar hafa ekki ætlað að láta sýninguna byrja svona. Hugmyndin hefur komið seint til. Ung hjón standa fyrir miðju framsviði, þögul, hlið við hlið, en í stúkunni til hliðar sitja roskin hjón, mun glæsilegar búin en [...]

Í kjallaranum

2019-06-12T11:09:55+00:009. febrúar 2014|

Bláskjár var ein af mínum uppáhaldsbókum í bernsku og ekki síst þess vegna var tilhlökkunarefni að sjá samnefnt leikrit Tyrfings Tyrfingssonar sem frumsýnt var á vegum Óskabarna ógæfunnar á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Mér er líka í fersku minni morðfyndinn einþáttungur Tyrfings á sama sviði í fyrra, „Skúrinn á sléttunni“. Tyrfingur hefur greinilega mikinn [...]

Saga skjótta hestsins

2019-06-12T15:52:15+00:0021. apríl 2013|

Sjaldan hef ég á langri leikhúsævi séð leikara „taka salinn“ eins og Atli Rafn Sigurðarson gerði í gær á frumsýningu Engla alheimsins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Ekki aðeins ávarpa salinn og gera hann að trúnaðarmanni sínum heldur stjórna honum eins og stórum kór eða sinfóníuhljómsveit. Enda „átti“ Atli Rafn sviðið alla sýninguna út í gegn [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

Mala domestica

2020-01-30T15:15:42+00:0022. janúar 2010|

Heimilisböl er verra öðru böli, út á það ganga ófá leikrit og sögur, enda óhamingjusamar fjölskyldur óhamingjusamar hver á sinn hátt, eins og skáldið benti á. Í leikriti Sigtryggs Magnasonar, Bráðum hata ég þig, sem var frumsýnt í Nemendaleikhúsinu í gærkvöldi, hittum við fjórar húnvetnskar systur. Steinunn, Snæfríður og Anna búa enn á heimaslóðum, Halla [...]