Þú ert hér://Tag: Hannes Óli Ágústsson

Óskemmtilegt verkefni

2026-03-26T12:28:34+00:0026. mars 2026|

Sviðslistahópurinn Díó sýnir nú verkið Jötungíma kveður í turni Elliðaárstöðvarinnar í samstarfi við MurMur productions og Elliðaárstöð. Aðalbjörg Þóra Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir hafa yfirumsjón með handriti og leikstýra, ljósahönnuður er Ólafur Ágúst Stefánsson, leikmynda- og búningahönnuður er Brynja Björnsdóttir; Saga Kjerúlf Sigurðardóttir og DÍÓ sjá um kóreógrafíu en hljóðhönnuður er Baldvin Magnússon. Sviðið [...]

Raunasaga Víkingsins

2024-02-23T17:02:31+00:0023. febrúar 2024|

Mestu skrautsýningar leikhúsanna í heiminum eru iðulega söngleikir. Í þá er mikið lagt – í leikmyndir, ljós, fjölda leikara og söngvara, að ekki sé talað um búninga, og mætti nefna allnokkra bara í okkar húsum á undanförnum árum og áratugum þessu til staðfestingar. Flestir hafa þessir söngleikir líka verið margprófaðir á sviðum erlendis áður en [...]

Baráttan um orkuna

2023-11-13T09:51:01+00:0013. nóvember 2023|

Leikhópurinn Díó sýnir núna heimildaverkið Piparfólkið eftir Aðalbjörgu Árnadóttur og Ylfu Ösp Áskelsdóttur uppi á lofti í Kornhlöðunni, Bankastræti 2. Mjög fáir komast að hverju sinni svo að ráðlegt er að bíða ekki lengi með að panta miða. Í kynningu segir: „Þegar Aðalbjörg kemst að óvæntu leyndarmáli langafa síns, hefst atburðarás sem er í senn [...]

En þeirra er kærleikurinn mestur

2019-03-18T10:49:26+00:0012. janúar 2018|

Ég hélt að það væri ekki hægt. Nei: Ég var viss um að það væri ekki hægt að færa þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar um nafnlausa vestfirska strákinn upp á svið. Vantrú minni var gerð skömm til á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi á frumsýningu Himnaríkis og helvítis í leikgerð Bjarna Jónssonar og undir hugmyndaríkri og [...]

Eru tvisvar tveir fjórir eða fimm?

2019-04-30T11:36:15+00:0016. september 2017|

Það var auðvitað stórfurðulegt að sitja við Nýja svið Borgarleikhússins að kvöldi viðburðaríks dags með stjórnarslitum og valdsmannslegri ræðu forsætisráðherra og horfa á frumsýningu á 1984, leikgerð Roberts Icke og Duncans MacMillan á sígildri skáldsögu Georges Orwell. Heyra sífellt vísað til óendanlegs og takamarkalauss valds „Flokksins“ sem öllu ræður í fortíð og nútíð, sem breytir [...]

„Og hér ertu þá aftur … Kvíðinn sjálfur …“

2019-04-30T14:29:34+00:0019. apríl 2017|

Kvíði er merkilegt fyrirbæri, svo nauðsynlegur manneskjunni en þó svo leiðinlegur, og vel gert hjá leikhópnum SmartíLab að búa til um hann leiksýningu sem sýnir, fræðir og örvar til baráttu. Hún heitir Fyrirlestur um eitthvað fallegt og er sýnd í Tjarnarbíó undir stjórn Söru Martí. Á snjöllu sviði Brynju Björnsdóttur er stór málmgrind að kúluhúsi [...]

Pabbi minn er kona

2019-05-03T15:09:46+00:0014. janúar 2017|

Hannes Óli Ágústsson sýnir dirfsku með því að stíga fram og segja sögu sína og föður síns á Litla sviði Borgarleikhússins í sýningunni Hún pabbi. Þetta er einlæg og lágstemmd sýning eins og hæfir því viðkvæma efni sem hún fjallar um. Hannes Óli var um tvítugt þegar hann sá óvart mynd í heimilistölvunni sem var [...]

Puffin etketera

2019-05-03T16:45:59+00:0029. október 2016|

Ég veit ekki hvað forsvarsmenn stjórnarflokkanna segðu ef þeir hefðu séð leiksýninguna sem frumsýnd var kvöldið fyrir kjördag. Extravaganza eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem Soðið svið og Borgarleikhúsið frumsýndu í gær á Nýja sviði, er kolsvartur söng- og gamanleikur sem segir eins skýrt og verða má að hér á landi á (eins og skáldið sagði) sé [...]

„Tilkynni, herra höfuðsmaður …“

2019-05-08T15:26:31+00:0011. apríl 2016|

Gaflaraleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi nýtt íslenskt leikverk með söngvum eftir Karl Ágúst Úlfsson (texti) og Eyvind Karlsson (tónlist) um gamalkunnugt og ástsælt efni: Góði dátinn Svejk og Hasek vinur hans. Verkið byggir Karl Ágúst annars vegar á skáldsögu Haseks um Svejk sem hefur komið út margsinnis á íslensku í rómaðri þýðingu Karls Ísfeld og hins [...]

Fortíðardraugar og framtíðarsýn

2019-05-08T16:13:01+00:005. mars 2016|

Eiríkur Örn Norðdahl hefur verið all áberandi í íslensku leikhúsi í vetur, rétt eins og hann ætli að gera það að sínum vettvangi, enda búinn að prófa að gefa út ljóð og sögur og pólitískar og bókmenntalegar greinar – hann var meira að segja að gefa út bók með plokkfiskuppskriftum. Ekki hefur þó enn verið [...]