Þú ert hér://Tag: Halldór Laxness

Stafsetníng, sögufölsun og þjóðnýting skáldverka

2022-05-24T14:33:06+00:0024. maí 2022|

eftir Elmar Geir Unnsteinsson Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2022 [1] Elmar Geir Unnsteinsson, vísindamaður við Háskóla Íslands og dósent við University College Dublin. / Mynd: ©Kristinn Ingvarsson   Á Íslandi hefur lengi tíðkast, og tíðkast enn, að falsa menningarleg verðmæti. Fölsunin felur sögulegan veruleika og útrýmir sérkennum höfunda eða tímaskeiða [...]

Norðanstúlka kemur suður

2019-11-15T11:51:16+00:0015. nóvember 2019|

Ég hef alltaf haldið upp á Atómstöðina, kannski vegna þess að ég var norðanstúlka eins og Ugla og mér var strítt svolítið á því í skólanum mínum fyrir sunnan. Þetta er skemmtilega galin saga í stíl, Halldór Laxness leikur sér að því að sjá höfuðborgina með augum lítt reyndrar rúmlega tvítugrar stúlku norðan úr afdal [...]

Skáldsaga verður kvikmynd verður leiksýning

2019-05-03T15:44:54+00:0031. desember 2016|

Fimmta leikgerðin af Sölku Völku Halldórs Laxness var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Ég hafði séð þær fjórar sem á undan fóru en þær eru misjafnlega minnisstæðar. Raunar man ég langbest eftir þeirri fyrstu, frá 1982, sem Stefán Baldursson leikstýrði. Guðrún S. Gísladóttir er ógleymanleg í titilhlutverkinu og ég get ennþá kallað lokasenuna [...]

… en maður verður að rækta garðinn sinn

2019-05-20T17:29:16+00:0015. mars 2015|

Birtíngur eftir franska heimspekinginn Voltaire (útg. 1759) er eitt frægasta verk franskra bókmennta og við vorum svo heppin hér á landi að Halldór Laxness eyddi tólf dögum af lífi sínu árið 1945 í að snara henni. Þýðingin ber þessum vinnuhraða nokkurt vitni en sennilega græðir verkið fremur en það tapar á hraðanum. Það er eitthvert [...]

Kolumkilli var hér

2019-05-22T12:30:18+00:0027. desember 2014|

Byrjunin á sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu er bæði snjöll og áhrifarík. Þó sést í útgefinni leikgerð að handritshöfundar hafa ekki ætlað að láta sýninguna byrja svona. Hugmyndin hefur komið seint til. Ung hjón standa fyrir miðju framsviði, þögul, hlið við hlið, en í stúkunni til hliðar sitja roskin hjón, mun glæsilegar búin en [...]

Á trúnó með Magnúsi Hjaltasyni

2019-06-19T11:24:05+00:0015. október 2012|

Alltaf er ég svolítið hissa á áhuga manna á Magnúsi Hj. Magnússyni, persónu hans og skrifum – það er að segja eftir að Halldór Laxness hafði nýtt sér dagbækur hans í sitt mikla verk, Heimsljós. En auðvitað getur verið athyglisvert að skoða Magnús í ljósi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, íhuga muninn á frummynd og eftirmynd. Þetta er [...]

Sagan af köllun skáldsins

2019-08-13T14:35:55+00:0027. desember 2011|

Heimsljós, skáldsaga Halldórs Laxness í fjórum bindum um skáldið og öreigann Ólaf Kárason, er margra eftirlæti. Leikgerðasmiðir hafa verið meðal aðdáenda hennar, og nokkra Ólafa hefur maður horft á gegnum tíðina þjást uppi á sviði undan þungum örlögum: Hjalta Rögnvaldsson í Þjóðleikhúsinu, Helga Björnsson og Þór Tulinius í Borgarleikhúsinu, og núna síðast tvíeykið Hilmi Snæ [...]

Saga um háar hugsjónir, ást – og svik

2019-08-08T15:18:19+00:0024. apríl 2010|

Best að segja það strax: Sýning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness er vel heppnuð. Um margt ólík öllum þeim sex uppsetningum sem ég hef séð áður á verkinu, um margt hugmyndaríkari, beinskeyttari, pólitískari, efnismeiri jafnvel, bæði af því að sýningin er löng og svo er svið Finns Arnars Arnarsonar svo haglega gert að enginn [...]

Saga af görpum

2019-08-08T14:56:17+00:0013. febrúar 2010|

Gerpla Halldórs Laxness, saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Bessasonar Kolbrúnarskálds, er glæsilegt verk sem hefur margt til að laða að sér breiðan hóp lesenda: mikla atburðarás og lifandi lýsingar á stórum og smáum viðburðum, spennu og ofbeldi, óleyfileg erótísk sambönd, einlæga vináttu og heitar ástir. Hún hefur fornlegan stíl, er fyndin og hefur djúpan [...]