Þú ert hér://Tag: Guðný Hrund Sigurðardóttir

Harmur manneskjunnar

2026-03-14T10:46:42+00:0014. mars 2026|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á Nýja sviði leikritið Mömmó eftir bandaríska leikskáldið Paulu Vogel. Þjála og munntama þýðingu gerir Ingunn Snædal en Agnar Jón Egilsson leikstýrir. Leikmynd og búninga hannar Guðný Hrund Sigurðardóttir en Þorbjörn Steingrímsson sér um hljóðhönnun og tónlist. Lýsingin var hönnuð af Pálma Jónssyni sem til dæmis beitti henni af góðri [...]

Gullæði

2025-10-03T17:57:42+00:003. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi einleikinn Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur fyrir viku síðan en aðstæður ollu því að ég sá það ekki fyrr en í gærkvöldi. Kolbrún leikstýrir verki sínu sjálf og þýðir það ásamt móður sinni, Friðriku Benónýsdóttur, því að leikritið er skrifað á ensku og var upprunalega sýnt í Skotlandi. Leikmynd og búninga [...]

Breytingin er eini fastinn

2025-02-04T16:19:37+00:001. febrúar 2025|

Það mætti halda að Marmarabörn hefðu verið að hugsa um nýliðið ár þegar þau skírðu sýninguna sína Árið án sumars, alla vega eins og það blasti við okkur hér á suðvesturhorninu. En þau voru búin að hugsa þennan titil æði lengi áður en kom að því ári, enda eru þau með í huga sumarið 1816 [...]

Allt – sinnum hundrað þúsund

2024-05-10T11:55:58+00:004. maí 2024|

Leikhópurinn Svartur jakki frumsýndi í gærkvöldi í samstarfi við Þjóðleikhúsið Óperuna hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Kristínu Eiríksdóttur, í Kassa Þjóðleikhússins. Guðný Hrund Sigurðardóttir gerir fantalega spennandi búninga, Friðþjófur Þorsteinsson hannar vandaða lýsingu, Hákon Pálsson gerir myndbandið sem er bæði upplýsandi og smart en Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir heldur utan um allt saman og [...]

Sögulegt verk í sögulegri sýningu

2023-03-17T12:08:33+00:0017. mars 2023|

Leikhópurinn Elefant frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum eigin leikgerð af skáldsögu Halldórs Laxness frá 1943–6, Íslandsklukkunni, í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Leikstjóri er Þorleifur Örn Arnarsson sem einnig gerir leikgerðina ásamt Bjarti Erni Bachmann, Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og leikhópnum. Íslandsklukkan er stór skáldsaga með fjölmörgum persónum og miklum atburðum sem ýmist eru sögulegir eða skáldaðir og [...]

Að vera eða vera ekki pabbi

2023-02-15T14:02:02+00:0013. febrúar 2023|

Þjóðleikhúsið endurfrumsýndi um helgina leiksýningu Kára Viðarssonar og Maríu Reyndal Prinsinn á Litla sviðinu í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Þar var verkið einmitt heimsfrumsýnt síðastliðið vor og síðan hefur það ferðast um landið. Það er gott til þess að vita að margir hafi fengið tækifæri til að sjá það því að þetta er þörf [...]

Það er vissulega vandi að vera manneskja

2021-09-25T17:50:37+00:0025. september 2021|

Ævi Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals virðist í fljótu bragði ekki henta sérlega vel í barnasýningu. Stórviðburðir æsku hans voru átakanlegir og sem fullorðinn maður hafði hann litla hugmynd um hvernig ætti að vera góður eiginmaður og faðir. Engu að síður hefur verið skrifuð bók fyrir börn um ævi hans og lífsstarf (Margrét Tryggvadóttir, 2019) og hún [...]

Eftir flóðið

2020-01-21T12:02:20+00:0021. janúar 2020|

Eyður / Mynd: Owen Fiene Samkvæmt verki Marmarabarna, Eyðum, sem ég sá á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi, byrjar maðurinn aftur sem safnari eftir Flóðið. Á sviðinu eru fimm mannleg reköld á eyðilegri strönd þegar tjaldið er dregið frá, ekkert er að sjá í umhverfi þeirra nema misjafnlega stórir plastbútar í ýmsum litum. [...]

Leikið á lofti

2019-05-06T16:47:02+00:0019. september 2016|

Írsk-íslensk samvinna ber fagran ávöxt í Fjaðrafoki, leiksýningu fyrir yngstu áhorfendurna eftir Chantal McCormick og Tinnu Grétarsdóttur sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um helgina á vegum Bíbí & blaka og írska sirkusflokksins Fidget Feet. Ég var svo heppin að fá að sjá hana með tveim leikskólabekkjum tveggja til þriggja ára barna núna á mánudagsmorgni og [...]