Þú ert hér://Tag: Gréta Kristín Ómarsdóttir

Ef þið sjáið eitthvað, segið eitthvað

2025-10-10T15:32:19+00:0010. október 2025|

Leikhópurinn Stertabenda sýnir nú á Litla sviði Borgarleikhússins eigið sköpunarverk, Skammarþríhyrninginn. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir, stílhreina og fallega leikmynd og marga stórkostlega búninga hannaði Eva Signý Berger. Dulúðug og stundum ógnandi tónlistin var úr smiðju Axels Inga Árnasonar og Egils Andrasonar sem einnig sá um hljóðmynd. Ólafur Ágúst Stefánsson hannaði lýsingu, Cameron Corbett skapaði [...]

Þriðji stóllinn

2021-09-24T14:41:29+00:0024. september 2021|

Þjóðleikhúsið býður nú upp á hádegisleikhús í Þjóðleikhúskjallaranum, nýbreytni sem ber að fagna. Fyrsta verkið á dagskrá er Út að borða með Ester eftir Bjarna Jónsson, hálftímalangt stykki sem gerist á veitingahúsi þannig að við áhorfendur erum eðlilegt umhverfi leikaranna. Boðið er upp á súpu og brauð sem hvort tveggja var vel útilátið á sýningunni [...]

Forréttindahommi segir frá

2021-08-19T13:41:48+00:0019. ágúst 2021|

Bjarni Snæbjörnsson er holdgervingur lífsgleði svona til að sjá, glæsilegur maður, fríður sýnum með sérstaklega fallegt bros sem hann er óspar á. Það kemur eflaust mörgum vinum hans og öðrum samferðamönnum á óvart hvað hann segir í rauninni átakanlega sögu í söngleiknum um ævi sína, Góðan daginn, faggi, sem nú er sýndur í Þjóðleikhúskjallaranum. En [...]

Umbreyting í takt við Schubert

2020-08-07T00:04:56+00:006. ágúst 2020|

Þegar þau gengu inn á sviðið í Tjarnarbíó í gærkvöldi, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Tómas Guðni Eggertsson og Kristrún Hrafnsdóttir, voru þau ekkert áberandi frábrugðin félögunum á upptökunni með Fischer Dieskau og Eschenbach sem ég hafði horft á fyrr um daginn á netinu flytja ljóðaflokkinn um Malarastúlkuna fögru eftir Franz Schubert og Wilhelm Müller. Dieskau og [...]

Arfleifð Þorvalds Þorsteinssonar

2019-12-22T14:25:24+00:0022. desember 2019|

Íslenskt menningar- og listalíf missti afar mikið við lát Þorvalds Þorsteinssonar myndlistarmanns og rithöfundar þegar hann féll frá árið 2013, aðeins rúmlega fimmtugur. Þekktasta verk hans, Skilaboðaskjóðan, hefur tvívegis verið sett á svið í Þjóðleikhúsinu og í gærkvöldi var Engillinn, mósaíkverk unnið upp úr ýmsum öðrum verkum Þorvalds, frumsýnt í Kassanum. Það var gæfuspor að [...]

„Við viljum sjá heiminn brenna“

2019-04-29T14:02:59+00:0029. apríl 2019|

Ærslaleikurinn Bæng! eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg var frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudagskvöldið í prýðilegri þýðingu Hafliða Arngrímssonar, og ég sá aðra sýningu í gærkvöldi. Það sem ég hef áður séð eftir Marius hefur vissulega verið ærslakennt og fyndið en líka absúrd og vakið hugmyndir og hugrenningatengsl í allar áttir. En Bæng! [...]

Ævintýri í undirheimum

2019-03-18T10:36:08+00:0014. janúar 2018|

Ein af kærkomnu nýju barnasýningunum í höfuðborginni er á splunkunýju íslensku verki, Skúmaskoti eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem sýnt er á litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir sem átti hina eftirminnilegu sýningu Stertabendu í Þjóðleikhúsinu í hittifyrra. Í Skúmaskoti eru systurnar Rúna (Þórunn Arna Kristjánsdóttir) og Vala (Vala Kristín Eiríksdóttir) með vinsælt snapp saman [...]

Ærsl og óreiða í Kúlunni

2019-05-06T15:53:41+00:002. október 2016|

Fyrir nokkru vantaði mig samheiti yfir „ringulreið“ og leitaði í Snöru, orðabókinni á netinu. Meðal margra tillagna þar sá ég orðið „stertabenda“ sem mér fannst sniðugt en einum of einkennilegt til að nota í venjulegum texta. Það er dregið af því þegar stertar hesta lenda í bendu svo þeir festast saman. („Á miðri götunni voru [...]