Þú ert hér://Tag: Ernesto Camilo Aldazabal Valdes

Fjötrar fortíðar

2026-10-16T14:24:35+00:0020. september 2026|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Svikasögur eftir Maríu Reyndal, höfundur leikstýrir sjálf. Aðstoðarleikstjóri er Egill Andrason en dramatúrgar Maríanna Clara Lúthersdóttir og Æsa Guðrún Bjarnadóttir. Eva Signý Berger hannaði þriggja hæða fjölskylduhúsið á sviðinu sem gaf manni nóg að horfa á og hugsa um, og hún sá líka um búninga sem [...]

Vill einhver elska 29 ára gamla konu í hjólastól?

2024-09-13T09:24:11+00:0013. september 2024|

Taktu flugið ,beibí! eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur var frumsýnt í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir leikstýrir verkinu og hún hannaði líka snjalla leikmyndina utan um eina húsgagnið á sviðinu: hjólastól söguhetjunnar. Skemmtilegir og listrænir búningar eru verk Filippíu I. Elísdóttur; lýsingin sem oft tók mið af eða stýrði jafnvel stemningunni er hönnuð af Ástu [...]

„Eina reddingin sem reddar því að þessi redding reddist er sönn ást!“

2024-03-25T20:06:11+00:003. mars 2024|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær söngleikinn Frost sem byggður er á Disneykvikmyndinni ofurvinsælu, Frozen. Fjarlægari kveikja að verkinu er ævintýrið um Snædrottninguna eftir H.C. Andersen. Ég sá sýninguna degi fyrr, á aðalæfingunni á föstudagskvöldið, og skrifa um þá sýningu. Handritið er eftir Jennifer Lee, tónlist og söngtextar eru eftir Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez en Bragi Valdimar [...]

Vitið þér enn – eða hvað?

2024-01-09T09:22:06+00:0027. desember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikverkið Eddu eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur, Jón Magnús Arnarsson og Þorleif Örn Arnarsson sem einnig var leikstjóri sýningarinnar. Leikmyndina með sínum stílfærða Aski Yggdrasils fyrir miðju hannaði Vytautas Narbutas. Áheyrileg tónlist og flókin hljóðhönnun var í höndum Sölku Valsdóttur, Egils Andrasonar og Arons Þórs Arnarssonar en Salka var tónlistarstjóri. Karen Briem [...]

„Ég er fífl, ég er skúrkur“

2023-09-13T09:54:16+00:0010. september 2023|

Fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöldi í Kassanum á Ást Fedru, vægðarlausu leikriti eftir breska leikskáldið Söruh Kane í prýðilegri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir, Filippía I. Elísdóttir sér um leikmynd og búninga, Tumi Árnason um tónlist og Ásta Jónína Arnardóttir um ljós og myndbönd. Goðsagan forna um drottninguna sem girntist stjúpson [...]

„Vellandi hatur, svellandi ást“

2021-09-06T11:04:14+00:005. september 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi eftir æðilanga bið leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Þorleifur leikstýrir líka en dramatúrg er Hrafnhildur Hagalín. Einföld en lúmsk leikmyndin er Ilmar Stefánsdóttur, myndband er á vegum Nönnu MBS og Signýjar Rósar Ólafsdóttur en rosalegt búningafylliríið er verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur og Urðar Hákonardóttur. Flókna [...]

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

„Mamma mía, enn og aftur …“

2019-05-08T15:57:36+00:0012. mars 2016|

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstjóri og hennar einvalalið frumsýndu söngleikinn Mamma mia á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi við nánast stöðug fagnaðarlæti. Hver manneskja í salnum nauðaþekkti auðvitað þetta verk, ef ekki af sviði þá úr bíó, auk þess sem lögin hafa hljómað áratugum saman í eyrum okkar. Þó verður maður aldrei leiður á þeim. Og [...]