Þú ert hér://Tag: Edda Arnljótsdóttir

Ennþá gerast ævintýr

2019-05-16T16:33:07+00:0013. september 2015|

Það var ekki laust við að gæsahúð hríslaðist um mig þegar ég gekk í salinn í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Á stóra sviðinu blasti við sjálfur ævintýraskógurinn, dimmur og djúpur, með himinháum laufþungum trjám sem sólargeislar seytluðu í gegnum. Þarna lagði Börkur Jónsson leikmyndahönnuður upp til dýrlegrar skemmtunar enda var sýningin framundan um frægasta útlaga allra [...]

Kuggur, Mosi, mæðgurnar og leikhúsvélin

2019-05-22T11:08:05+00:0021. febrúar 2015|

Hugmynd Sigrúnar Eldjárn að bókunum um Kugg eru eiginlega á heimsmælikvarða. Bara það að láta sér detta í hug vinahóp sem samanstendur af einum strákling, smáveru með ofurkraft, sprækri kerlingu og miðaldra dóttur hennar, sem líka er hugmyndaríkur uppfinningamaður, er svo galin að hún hlýtur að virka. Enda hefur hún virkað árum saman í bókaflokknum [...]

Að lifa stríð

2019-05-27T13:35:19+00:0028. september 2014|

Ég hef verið stór aðdáandi Konunnar við 1000° síðan ég las hana nýútkomna en ekki bjóst ég við að hún myndi þola að fara á svið. Tíu tíma sjónvarpssería kannski eða að minnsta kosti ílöng tveggja kvölda leiksýning eins og Heimsljós og Sjálfstætt fólk en ekki eitt tveggja tíma leikrit. Þetta hefur þó verið gert. [...]

Að sjá með hjartanu

2019-06-04T08:07:03+00:006. apríl 2014|

Í gærdag frumsýndi Þjóðleikhúsið í Kúlunni leikgerð Stefáns Halls Stefánssonar á Litla prinsinum eftir Antoine de Saint-Exupéry undir stjórn Stefáns Halls. Íslensk börn munu einkum þekkja þetta verk úr barnatíma Sjónvarpsins þar sem er víst unnið með stök atriði úr sögunni en þá þætti hef ég ekki séð. Sagan er heimskunn enda bæði falleg og [...]

Dagleiðin langa inn í hrun

2019-06-19T11:35:10+00:0012. október 2012|

Jónsmessunóttin sem nýtt leikrit Hávars Sigurjónssonar tekur heiti sitt af er raunar aldrei nefnd beinlínis í verkinu svo ég tæki eftir á frumsýningunni í kvöld. En á Jónsmessunótt fara alls kyns vættir á kreik, að minnsta kosti hjá Shakespeare, og vel gæti Hávar verið að vísa í það með titlinum. Alltént er enginn hörgull á [...]

Brestur á með söng

2019-08-24T12:53:13+00:009. apríl 2011|

Það er mótsögn í orðunum sígilt og dægurlag en þó er það svo að fátt er eins sígilt og dægurlag sem hefur lifað af. Það er ekki aðeins sígilt af því að það heldur áfram að vera vel samið, jafnvel snilldarlega gert, heldur getur það á augabragði kallað fram minningar, jafnvel um atvik sem við [...]

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]

Völvan og Brennuvargarnir

2020-01-31T14:56:29+00:0024. október 2009|

Það var í óvænt gjöf að fá að sjá kvöld eftir kvöld nýjustu sýningar Þjóðleikhússins, einleikinn Völvu sem sýndur er í Kassanum og Brennuvargana eftir Max Frisch sem spóka sig á stóra sviðinu. Báðar eru sýningarnar vandaðar, einstaklega fallegar – og áhrifamiklar. Völva byggir á sjálfri Völuspá, eldfornu kvæði sem allir íslenskir framhaldsskólanemar kynnast enn [...]