Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Grínlaus óhamingja

2020-01-30T11:18:57+00:001. apríl 2010|

Þeir sem sáu leikritið Eilífa hamingju á litla sviði Borgarleikhússins rétt fyrir hrun og koma á leikritið Eilífa óhamingju eftir sömu höfunda með væntingar um svipaða nálgun verða sennilega fyrir vonbrigðum. Nema þeim hafi fundist léttúðin í fyrra verkinu óviðurkvæmileg og fagni nú meiri alvöru og þunga í meðferð efnisins. Fyrir minn smekk hefði meiri [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]

,,Þetta er teater”

2020-01-30T15:23:39+00:0016. janúar 2010|

Margt kom mér skemmtilega á óvart þegar ég fór að lesa mér til um Faust í tilefni af uppsetningu Vesturports á samnefndu verki á stóra sviði Borgarleikhússins. Til dæmis það að persóna þjóðsagna og bókmennta á sér raunverulega fyrirmynd ef marka má Salmonsens konversationsleksikon frá 1918, dr. Johann Faust, þekktan farandspámann og svartagaldramann sem fæddur [...]

Við erum öll Jesús

2020-01-30T15:40:30+00:0022. nóvember 2009|

Trúðarnir Barbara (Halldóra Geirharðsdóttir) og Úlfar (Bergur Þór Ingólfsson) eru enn komin á kreik á Litla sviði Borgarleikhússins, nýbúin að færa okkur Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante. Nú hafa þau fengið trúðinn Bellu (Kristjana Stefánsdóttir) í lið með sér og leika á sinn sérstaka hátt fyrir okkur sjálft jólaguðspjallið í verkinu Jesús litli. Benedikt Erlingsson leikstýrir [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]

Er virkilega best að vera heima?

2020-01-30T16:27:10+00:0028. september 2009|

Karli Marx varð einhvern tíma að orði að stórir atburðir mannkynssögunnar gerðust fyrst sem harmleikir en endurtækju sig svo sem farsi. Írska leikskáldið Enda Walsh fer með þessa kenningu alla leið og svolítið lengra í verkinu Heima er best (The Walworth Farce) sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Þar segir [...]

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á [...]

Við borgum ekki í Borgó

2020-01-30T16:57:57+00:007. júní 2009|

Það er eitthvað dásamlegt við tilhugsunina um að leikskáldið sem skrifaði farsann Við borgum ekki, við borgum ekki hafi fengið sjálf Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Þetta er arfavitlaust verk að öllu leyti – nema boðskapnum auðvitað – en svo hryllilega fyndið að maður missir sig gersamlega. Eins og einhver trúi því að fullorðinn karlmaður taki trúanlegt að kona [...]

Blessa oss að vorum veiðum

2020-01-30T17:01:33+00:006. júní 2009|

Það er sjaldgæf hátíðarstund að fá að horfa á Ingvar E. Sigurðsson einan á leiksviði í klukkutíma, eins og nú gefst færi á í Borgarleikhúsinu. Ekki dregur úr ánægjunni að hlusta á hann fara með góðan texta sem þar að auki er innihaldsríkur, gefur okkur landkröbbum innsýn í hugarheim sjómanns á hafi úti, líf hans [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]