Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Furðusögur handa fríkaðri þjóð

2020-01-31T15:31:13+00:004. apríl 2009|

Á nýja sviði Borgarleikhússins sýna þrír leikhúslistamenn okkur nokkrar glöggar svipmyndir úr þjóðlífinu frá undanförnum árum undir titlinum Þú ert hér. Þeir kalla sig Mindgroup og eru Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri, Jón Atli Jónasson leikskáld og Hallur Ingólfsson tónskáld og þeir gera allt í senn, semja textann og flytja hann og sjá um leikmynd, búninga, tónlist og [...]

Rachel og Þórir

2020-01-31T15:39:29+00:0022. mars 2009|

Tveir ungir leikarar fengu að láta ljós sitt skína á litlum sviðum stóru leikhúsanna í vikunni sem leið. Þóra Karítas Árnadóttir túlkaði bandaríska píslarvottinn Rachel Corrie í lífi og dauða á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Maríu Ellingsen, en á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins lék Þórir Sæmundsson – ja, einna helst lausum hala og laut engri utanaðkomandi [...]

Afturgengin ást

2019-06-12T12:12:23+00:0028. febrúar 2009|

Leikrit Friedrichs Dürrenmatts um milljónamæringinn sem snýr aftur heim í fæðingarbæ sinn sem hún var hrakin frá, ung, örbirg og ólétt, áratugum fyrr, er eitthvert miskunnarlausasta verk sem ég hef séð. Það á sameiginlegt með verki Shakespeares um Ríkharð þriðja að verða bara óhugnanlegra og andstyggilegra því lengra sem líður á það. Ný leikgerð af [...]

Hungur og gredda

2020-01-31T16:10:28+00:0031. janúar 2009|

Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, [...]

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús [...]

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir [...]

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem [...]