Þú ert hér://Tag: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Refaveiðar

2019-06-12T12:25:48+00:0017. nóvember 2013|

Dystópíur eru í tísku um þessar mundir – skáldverk þar sem lýst er illum heimi og engin eða lítil von framundan. Nægir að minna á Hungurleikana vinsælu og benda á að nokkrar bækur koma út á íslensku nú í haust, bæði innlendar og þýddar, sem gerast í slíkum vondum heimi. Kannski stafar þetta af umræðum [...]

Tálkvendið og hermaðurinn

2019-06-12T14:20:17+00:0020. október 2013|

Önnur gamalkunn saga var frumsýnd í óperuformi í Eldborg Hörpu í gærkvöldi, Carmen eftir Georges Bizet sem frumflutt var í París 1875 – við lítinn fögnuð almennra áheyrenda, skilst mér. Fólki fannst ástæðulaust að setja svona pakk á svið – verkalýð, portkonur og hermenn. Síðan hefur þetta orðið ein allra vinsælasta ópera í heimi og [...]

Bræður munu berjast …

2019-06-18T18:02:20+00:005. nóvember 2012|

Það er engu logið á uppsetningu Íslensku óperunnar á Il trovatore Verdis í Eldborgarsal Hörpu. Hljómsveitin leikur skínandi vel undir stjórn Carol I. Crawford, einsöngvararnir syngja hver öðrum betur og kórinn er flottur undir stjórn Halldórs E. Laxness. En eiginlega fannst mér sviðið hans Gretars Reynissonar stela senunni hvað eftir annað í göldróttri lýsingu Björns [...]

Allt til bóta

2023-09-14T18:36:11+00:002. nóvember 2012|

Fyrsta sviðsverk Ragnars Bragasonar, Gullregn, ber þess merki að höfundurinn er vanur að vinna fyrir kvikmyndavélar. Verkið er samsett úr þrettán atriðum sem gerast með mislöngu millibili, það líða allt frá tíu mínútum að fjórum mánuðum á milli og þá er sviðið myrkvað – þar sem Ragnar hefði klippt í kvikmynd. Þetta verður svolítið gamaldags [...]

Rauðir kassar

2019-06-19T11:40:05+00:0023. september 2012|

Annar tvíleikur í kvöld, eins ólíkur þeim í gær og hugsast getur: Átök tveggja manna sem byrja sem léttar skylmingar, skýrast, harðna, verða að uppgjöri um lífssýn og stefnu og leysast svo upp. Þetta er leikritið Rautt eftir John Logan sem Guðrún Vilmundardóttir þýðir og Kristín Jóhannesdóttir stýrir á litla sviði Borgarleikhússins. Verulega áhugavert leikverk [...]

Gott svar

2019-06-19T12:34:19+00:0030. apríl 2012|

Sýning Leikfélags Reykjavíkur á Svari við bréfi Helgu er sérkennileg upplifun – enda er grunnurinn strangt til tekið ekki leikrit heldur bréf sem maður er að skrifa og kafar á meðan niður í djúp minninganna. Þetta gerir óvenjulegar kröfur til Snorra Freys Hilmarssonar leikmyndahönnuðar og hann tekur þá djörfu ákvörðun að ganga út frá vatni. [...]

Ósköp er litla höndin þín köld

2019-08-08T16:19:49+00:0018. mars 2012|

Óperuleikstjórinn Jamie Hayes setti upp nokkrar sýningar hjá Íslensku óperunni í Gamla bíó og það er greinilegt á nýrri uppsetningu hans á La Bohème í Eldborgarsal Hörpu að hann hefur verið orðinn ansi leiður á þrengslunum á gamla staðnum. Þeir sem sáu uppsetningu hans á La Traviata fyrir um fjórum árum kannast við aðferðir hans [...]

Ljótar sögur af óþekkum krökkum

2019-08-24T12:24:40+00:0026. mars 2011|

Fyrsta sögubókin sem var gefin út handa íslenskum börnum hét Sumargjöf handa börnum og kom út 1795. Í henni voru margar móralskar sögur af óþekkum börnum sem hefndist grimmilega fyrir að hrekkja, heimta, vera matvönd eða frek, lygin, forvitin, fælin og þver. Bókin var þýdd úr þýsku og það er einmitt uppeldisfræði af hennar tagi [...]

Að vera eða ekki vera – þar er efinn

2019-09-05T22:10:22+00:0013. október 2010|

Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina. Það sem gerði útslagið í leiktexta Ólafs Egils Egilssonar var hve mikið af auði sögunnar komst upp á sviðið, hve mörg atvik og hve mikið af togstreitunni og þjáningu efans sem þjakar aðalpersónuna. Þetta [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]