Þú ert hér://Tag: Benedikt Karl Gröndal

Tvöföld hamingja

2024-11-03T14:46:31+00:003. nóvember 2024|

Ein minningarperlan úr leikhúsi í áranna rás er Himnaríki Árna Ibsen, „geðklofni gamanleikurinn“ sem Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör frumsýndi haustið 1995. Gaflaraleikhúsið rétt missir af að halda upp á þrítugsafmæli þeirrar sýningar með sýningu sinni á gamanleiknum Tómri hamingju á Nýja sviði Borgarleikhússins en Tóm hamingja er „geðklofin“ á sama hátt og Himnaríki: verkið er [...]

Kraftaverkin gerast víst

2021-02-24T09:46:08+00:0022. febrúar 2021|

Það er ansi stór hugmynd að taka inn, ekki síst fyrir krakka, að Litla svið Borgarleikhússins með öllu sem í því er og okkur áhorfendum líka sé í rauninni inni í höfði ellefu ára stúlku, en með þá hugmynd leikur hópurinn 10 fingur sér í verkinu Stúlkan sem stöðvaði heiminn. Verkið er samið af hópnum [...]

Er hlæjandi að þessu?

2019-05-27T15:57:07+00:0024. september 2018|

Það fer ekkert milli mála að efniviður háðsádeilu Guðmundar Brynjólfssonar, Svartlyngs, sem leikfélagið GRAL sýnir nú í Tjarnarbíó, er „Höfum hátt“-hreyfingin sem felldi ríkisstjórn í fyrra. Leikstjóri er líka Bergur Þór Ingólfsson sem stóð í miðju átakanna. Þessi efniskjarni er þó dulinn framan af. Vandræði Svartlyngs ráðherra (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og ráðstýru hans (Sólveig Guðmundsdóttir) [...]

Þegar Dóri litli var dæmdur vanhæfur Íslendingur

2019-05-22T13:38:47+00:0016. nóvember 2014|

Aldursbilið milli barns og unglings er ekki langt og ekki vel afmarkað en spennandi vegna þess hvað við erum opin, óræð og óráðin einmitt þá. Það er til dæmis þá sem við fáum gjarnan þá þráhyggju að við séum ekki í alvörunni þau sem okkur er sagt að við séum. Við getum ómögulega verið börn [...]

Að geta eða geta ekki

2019-06-04T07:53:00+00:0011. apríl 2014|

Leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum Háaloftsins, er í stíl róttæku áranna þegar bókmenntir áttu að hafa beinan samfélagslegan tilgang. Og McGlynn er ekkert að leyna því; verkið hennar er um barnleysi og hún sýnir það vandamál frá furðumörgum sjónarhornum á ekki lengri sýningu. Leikstjóri er [...]

Tilveran er mannleg

2019-06-12T15:07:33+00:0022. september 2013|

Við drifum okkur í gærkvöldi á Eiðinn og eitthvað sem leikhópurinn GRAL hefur sýnt undanfarið í Tjarnarbíó. Leikritið er eftir Guðberg Bergsson og það er skáldið sjálft sem er í miðju verksins, leikið af Erling Jóhannessyni. Hann hermir nett eftir sérstæðum talanda Guðbergs, rödd hans, áherslum og tóni, og okkur fannst það vel gert og [...]

Skoplega dapurt trúðlíf

2019-06-19T11:57:33+00:0015. júlí 2012|

Það er skínandi góð hugmynd hjá forráðamönnum (eða –manni) Frystiklefans á Rifi á Snæfellsnesi að endurvekja Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason. Hann var áður sýndur af Leikfélagi Íslands í Iðnó árið 2000 og fékk ágætar viðtökur ef ég man rétt. Annar trúðanna þá, Halldór Gylfason, er leikstóri núna á Rifi, og honum tekst að minnsta [...]

Út úr skápnum

2019-06-19T12:17:43+00:0018. maí 2012|

Það fór vel á því að sjá einleikinn Fastur næst á eftir Beðið eftir Godot. Bæði verkin eru dularfull, segja lítið á yfirborðinu en þeim mun meira undir niðri. Munurinn er þó talsverður. Til dæmis er mikið mas í síðarnefnda verkinu en hitt er orðalaust, og Beðið eftir Godot er þrír tímar með hléi en [...]

Eftir skjálftann

2019-08-13T14:44:45+00:0011. nóvember 2011|

Í Kvikunni í Grindavík vakna tveir karlar í hrundu húsi, Stefnir (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og Jón (Víðir Guðmundsson). Þeir vita varla hvað hefur skeð. Var þetta jarðskjálfti? Eða hvað? Þeir eru hungraðir en það er engan mat að fá. Loks finnur Stefnir poka með nokkrum sneiðum af Samsölubrauði og laumast til að maula eina en [...]