Þú ert hér://Tag: Auður Jónsdóttir

Brot úr Högna

2023-11-22T09:38:34+00:0022. nóvember 2023|

eftir Auði Jónsdóttur   Brot úr skáldsögunni Högni. Bjartur-Veröld gefur út.             Ég vissi ekki að Halli væri fyrirboði þegar hann kom fyrst í heimsókn. Bara enn einn vinur pabba sem leit við í glas af einhverju sterku að spjalla um bæjarpólitíkina og fótbolta. Óvenju hávaxinn maður sem bar sig [...]

Vængjaðar verur

2022-09-30T15:13:59+00:004. október 2022|

Auður Jónsdóttir: Allir fuglar fljúga í ljósið. Bjartur, 2021. 359 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2022.   Áföll og afleiðingar þeirra hafa litað bæði skáldskap og samfélagsumræðuna undanfarin ár og nýjasta bók Auðar Jónsdóttur, Allir fuglar fljúga í ljósið, hverfist í kringum það þema. Sigmund Freud var meðal þeirra fyrstu sem lagðist [...]

Ástarbréf yfir múrinn

2022-01-21T17:01:35+00:0021. janúar 2022|

Einleikurinn Það sem er, sem María Ellingsen frumsýndi í Tjarnarbíó í gærkvöldi, var upphaflega stutt skáldsaga, bréfasaga, sem þóttist kannski vera sönn: höfundurinn, Peter Asmussen, segist í inngangi hafa „fundið“ bréfin í fórum frænda síns eftir að hann lést. Þessi forsaga er ekki með í leiksýningunni, þar göngum við einfaldlega inn á bréfritarann, konuna Renate [...]

Maður og kona á 21. öldinni

2020-09-22T12:19:11+00:0021. september 2020|

Það er grímuskylda í Þjóðleikhúsinu og mér fannst það talsverð reynsla að sitja heila leiksýningu með grímu fyrir vitunum. En maður gerir hvað sem er, þegjandi og hljóðalaust, ef það stuðlar að því að leikhúsin haldist opin. Vissulega varð mér dálítið þungt um andardráttinn undir sýningunni en kannski var það ekki gríman heldur tilfinningaspennan á [...]

Sköpunarsagan

2020-02-18T09:34:11+00:0018. febrúar 2020|

Auður Jónsdóttir. Tilfinningabyltingin. Mál og menning, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020.  „Allt í einu langaði hana svo að kyssa og vera lifandi eins og sjórinn.“[1] Hjónabandssögur eru ekki óalgengir merkimiðar á skáldsögum þessa dagana. Það er ekki langt síðan að Dagar höfnunar Elenu Ferrante, Saga af hjónabandi Geirs Gulliksen og jafnvel [...]

Sýning fyrir allar ömmur

2020-02-09T12:57:50+00:009. febrúar 2020|

Auður Jónsdóttir rithöfundur frumsýndi í gærkvöldi sýninguna Auður og Auður á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar segir hún frá sambandi sínu við ömmu sína, Auði Sveinsdóttur Laxness, og tímabilinu sem hún fjallar um í bókinni Ósjálfrátt frá 2012. Auður byrjar hversdagslega dramatískt. Hún er stödd í eldhúsinu hjá ömmu sinni á Gljúfrasteini, rúmlega tvítug [...]

Að skammast sín – en fyrir hvað?

2019-04-30T12:28:35+00:0012. september 2017|

Í gærkvöldi var frumsýnt í Kúlu Þjóðleikhússins verk sem að efni og uppsetningu brýtur að ýmsu leyti blað í íslenskri leikhússögu. Verkið heitir Smán og er eftir Bandaríkjamanninn Ayad Akhtar sem hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir það árið 2013. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann en þýðendur eru Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson. Smán gerist í New York á [...]

Hugarburður skálds

2019-06-21T10:52:51+00:0012. júní 2013|

Auður Jónsdóttir. Ósjálfrátt. Mál og menning, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2013. „Hvernig byrjar maður skáldsögu?“ spyr sögumaður í upphafi fimmta kafla Ósjálfrátt og bendir þar með á einn gildasta þáttinn í frásögn bókarinnar sem eru hugleiðingar um tilurð skáldskaparins og hlutskipti þess sem velur sér skriftir að lífsstarfi. Ósjálfrátt er einum [...]

Að vera eða ekki vera – þar er efinn

2019-09-05T22:10:22+00:0013. október 2010|

Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina. Það sem gerði útslagið í leiktexta Ólafs Egils Egilssonar var hve mikið af auði sögunnar komst upp á sviðið, hve mörg atvik og hve mikið af togstreitunni og þjáningu efans sem þjakar aðalpersónuna. Þetta [...]

Þetta má ekki hafa eftir þér, Dorrit

2020-01-29T12:20:35+00:0013. apríl 2010|

Mánudagsleikhúsið fór af stað með hvelli í Iðnó í gærkvöldi. Þá var fyrsta og eina sýningin á leikritinu Nei, Dorrit! sem Þórarinn Leifsson byggði á frægu viðtali Joshua Hammer við íslensku forsetahjónin frá því snemma árs 2009; Auður Jónsdóttir stýrði. Nú er viðtal eiginlega leikrit og þetta viðtal er nógu djúsí til að standa lítt [...]