Þú ert hér://Tag: Ásthildur Úa Sigurðardóttir

Vítahringur hefndarinnar

2025-12-27T16:51:27+00:0027. desember 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum endurgerð leikstjórans Benedicts Andrews á Óresteiu, þríleik gríska leikskáldsins Æskilosar (525 – 456 f.Kr). Kristín Eiríksdóttir hefur unnið vandaða þýðingu sem flæðir einstaklega vel og kemur skýrt til skila ólgandi og oft andstæðum tilfinningum og skilaboðum textans auk hnyttinna skírskotana til samtímans. Þó leiddist mér ákaflega klifun á blótsyrðinu [...]

Átök um auðinn

2024-12-29T15:44:16+00:0029. desember 2024|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á Litla sviðinu Kött á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams í mergjaðri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Hér er hvorki gripið til orðskrípa á borð við fokk eða sjitt heldur fær sá í neðra að heyra á sig kallað milliliðalaust. Og oft! Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir af næmi og nákvæmni. Naumhyggjulega leikmynd [...]

Kvöldstund með Heiðari snyrti

2024-01-26T10:47:50+00:0020. janúar 2024|

  „Þú gætir kallað umsögnina þína Veislu undir grjótvegg,“ sagði fylgdarmaður minn þegar við vorum sest inn í Litla sal Borgarleikhússins í gærkvöldi og virtum fyrir okkur glæsilega sviðsmynd Barkar Jónssonar, háa, grófa og margbrotna Drápuhlíðargrjótvegginn sem húsbóndinn á heimilinu, Ingi (Sigurður Þór Óskarsson), skreytir með rauðum ljósaklösum meðan gestir á Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson [...]

Gömul saga og glæný

2023-10-03T09:56:27+00:0030. september 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi af margföldu tilefni sjötugan söngleik þeirra bræðra og snillinga Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Deleríum búbónis. Bergur Þór Ingólfsson lagaði verkið að nýjum tíma og leikstýrir sýningunni eins og fer ekki framhjá neinum. Þar er skörp kímnigáfa hans við stjórn, glöggt auga hans fyrir tímasetningum og óbrigðult næmi hans á [...]

Myrkviði mannssálarinnar

2023-05-15T12:25:41+00:0024. apríl 2023|

  Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi um helgina Svartþröst eftir Skotann David Harrower á Litla sviði Borgarleikhússins. Vignir Rafn Valþórsson bæði þýðir og leikstýrir enda er hann kunnugur verkum af þessu tagi ­ – erfiðum, afhjúpandi verkum sem ganga nærri persónum sínum, leikurum og áhorfendum. Ég minnist sýninga hans á Munaðarlaus, Bláskjá, Hans Blæ, Illsku, Refnum og [...]

Macbeth í austurvegi

2023-02-08T16:41:29+00:0014. janúar 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Macbeth eftir William Shakespeare í nýrri prýðilegri þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar. Leikstjóri var undrabarn frá Litháen, Uršulė Barto, Milla Clarke hannar leikmynd, Liucija Kvašytė sér um búninga og leikgervi, Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson um tónlistina en hljóðmyndin er í höndum Þorbjörns Steingrímssonar. Lýsingin og hin viðamikla [...]

Nostalgían lifnar við

2021-12-06T16:36:33+00:006. desember 2021|

Það dekrar við fortíðarþrána í manni að horfa á uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Emil í Kattholti sem var frumsýnd um helgina á stóra sviði Borgarleikhússins. Ég sá aðra sýningu, í gær sunnudag, vegna þess að leikhúsfélagi minn tæplega fjögra ára var enn í smitgát á laugardaginn en sloppinn í gær. Sviðið hennar Evu Signýjar Berger [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]

Mamma hetja í stríðinu

2019-05-22T10:33:45+00:0017. maí 2019|

Listaháskólinn hefur staðið fyrir mikilli leikhúsveislu undanfarið því útskriftarnemendur á sviðshöfundabraut hafa frumsýnt tíu verk víðsvegar í Reykjavík í maímánuði auk þess sem nýju leikararnir frumsýndu Mutter Courage eftir Bertolt Brecht norður á Akureyri í þýðingu Ólafs Stefánssonar og undir stjórn Mörtu Nordal. Þau frumsýndu svo aftur í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Mér tókst ekki [...]