Þú ert hér://Tag: Aron Már Ólafsson

Gunnella fær gest

2025-07-10T12:29:55+00:0010. júlí 2025|

Katla Þórudóttir Njálsdóttir sýnir nú hjá Afturámóti í Háskólabíó verk sitt Gunnellu. Leikstjóri er Killian G.E. Briansson en leikmyndina hönnuðu Katla sjálf, Þóra Pétursdóttir og Sævar Guðmundsson. Leikmyndin styður vel við persónusköpun Gunnellu, form, litir og (ekki síst) myndirnar á veggnum. Ekki er þess getið í upplýsingum hver sér um lýsingu en hún fannst mér skipta máli [...]

Nostalgían lifnar við

2021-12-06T16:36:33+00:006. desember 2021|

Það dekrar við fortíðarþrána í manni að horfa á uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Emil í Kattholti sem var frumsýnd um helgina á stóra sviði Borgarleikhússins. Ég sá aðra sýningu, í gær sunnudag, vegna þess að leikhúsfélagi minn tæplega fjögra ára var enn í smitgát á laugardaginn en sloppinn í gær. Sviðið hennar Evu Signýjar Berger [...]

Nífaldur Bubbi Morthens

2020-03-17T17:07:50+00:0014. mars 2020|

Tvennt gerir mér einkum erfitt fyrir að skrifa um söngleikinn 9 líf eftir Bubba Morthens og Ólaf Egil Egilsson sem var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Ólafs Egils. Annað er hve margir hafa þegar tjáð sig í svo löngu og litríku máli um sýninguna á Facebook að það verður vandi að [...]

Ys og þys út af ástinni

2019-10-11T13:50:02+00:0011. október 2019|

Vegir hugverkanna eru margir og margvíslegir. Oftast fara þó skáldsögur upp á svið eða í bíó en líka kemur fyrir að bíómyndir fara upp (eða niður) á leiksvið. Shakespeare verður ástfanginn byrjaði með handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard í kvikmynd sem naut mikilla vinsælda og hlaut ótal verðlaun og viðurkenningar. Þessa bíómynd lagaði [...]

Jelena snýr aftur

2019-05-27T12:55:31+00:0013. apríl 2019|

Það er gaman að fara í leikhús og margra leiksýninga minnist ég með sérstakri ánægju. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þær ekki margar sem standa upp úr, fá yfir sig einhverja áru í minningunni, verða jafnvel að goðsögn. Ein þessara örfáu sýninga er Kæra Jelena eftir Ljúdmílu Razúmovskaju sem Þjóðleikhúsið frumsýndi [...]

Aftur og aftur

2019-05-08T16:05:21+00:009. mars 2016|

Nemar við Sviðslistadeild Listaháskólans sýndu í gærkvöldi leikritið Þvott í Tjarnarbíó. Þetta er einþáttungur, einfaldur í ytri gerð en lúmskur. Höfundur og leikstjóri er Matthías Tryggvi Haraldsson sem hefur áður vakið athygli fyrir leiktexta. Bak við stóra frítt standandi glerrúðu á sviðinu stendur Jens (Árni Beinteinn) við vinnu sína. Hann ber sápulög á alla rúðuna [...]