Þú ert hér://Tag: Ágústa Skúladóttir

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Lotta komin aftur á kreik

2023-06-21T13:49:07+00:001. júní 2023|

Það var mikil gleði í Ævintýraskóginum í Elliðaárdalnum síðdegis í gær þegar Leikhópurinn Lotta reis úr covid-rotinu og skemmti stórum hópi barna og fullorðinna með leik, söng og dansi undir fyrirsögninni Gilitrutt. Ekki er hægt að segja einfaldlega að verkið sé um þessa lífseigu skessu því að inn í söguna af henni blandar höfundurinn sögunni [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]

Leikur án orða

2022-10-24T12:06:05+00:0024. október 2022|

Leikhópurinn Baun í bala frumsýndi fyrir nokkru nýja algrímusýningu í Tjarnarbíó sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir ásamt Orra Hugin Ágústssyni. Verkið heitir Hríma og segir frá fullorðinni einsetukonu, Hrímu (Aldís Davíðsdóttir) sem býr á afskekktum stað í heldur ótótlegu húsnæði gerðu mestmegnis úr teppum og lökum. Þar hefur hún lokað sig inni með gömlum minningum – [...]

Ekkert heilagt

2022-09-30T14:17:44+00:004. september 2022|

Ég hef lengi vitað að þeir sem stunda þá atvinnu að gagnrýna það sem aðrir gera eru almennt álitnir asnar, einkum af þeim sem gagnrýndir eru. En ég vissi ekki fyrr en í gær að fyrstu gagnrýnendurnir í veraldarsögunni hefðu beinlínis verið hirðfífl valdhafanna – sem sé haft atvinnu af hvoru tveggja, að gagnrýna og [...]

Þegar orð eru óþörf

2022-05-17T10:21:13+00:008. apríl 2022|

Það eru rúm níu ár síðan ég sá Hjartaspaða í Gaflaraleikhúsinu, fyrstu leiksýninguna sem ég hafði séð þar sem leikið var með heilgrímur. Þó að afar vel tækist til hefur leikurinn ekki verið endurtekinn, svo ég viti til – fyrr en nú og þá af sömu aðilum, Skýjasmiðjunni. Hún frumsýndi um síðustu helgi verkið Hetju [...]

Njála fyrir alla, konur og kalla

2021-11-06T16:42:00+00:006. nóvember 2021|

Þeir eru alveg ótrúlegir, þeir Hundar tveir í óskilum, Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Eftir alla þjóðarsöguna í tveim sýningum og sögu kvenfólksins í landinu í einni færa þeir okkur Njálu – en á hundavaði, skiljanlega. Þeir segjast í viðtali vera að fara með hana aftur heim því upphaflega hafi hún verið mælt af munni [...]

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

Þroskasaga spýtustráks

2020-02-24T13:40:46+00:0023. febrúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í dag á Litla sviði Borgarleikhússins leikgerð Ágústu Skúladóttur, Karls Ágústs Úlfssonar og leikhópsins á Ævintýrum spýtustráksins Gosa. Þessi lífseiga saga Ítalans Carlos Collodi, sem kom fyrst út sem framhaldssaga í ítölsku barnablaði á árunum 1881–82, er í eðli sínu afar vel útfærð siðræn uppeldisfræði, svo skýr og opinská að það má [...]

Ástin, óttinn og grínið

2019-03-18T09:30:34+00:004. febrúar 2018|

Alltaf gleður það mann, Gaflaraleikhúsið, nú síðast í dag með nýju verki eftir Karl Ágúst Úlfsson sem er byggt á Skugga-Sveini Matthíasar Jochumssonar: Í skugga Sveins. Þar gera þau sér lítið fyrir Karl Ágúst sjálfur og Kristjana Skúladóttir og segja okkur þessa gömlu sögu um útilegumanninn Svein og samskipti hans við fólkið niðri í byggðinni [...]