Þú ert hér://Tag: Úlfhildur Dagsdóttir

Hlæjandi meyjar: Tilraunastofan Lóaboratoríum

2020-10-13T14:14:56+00:0013. október 2020|

eftir Úlfhildi Dagsdóttur úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2020.   Myndin birtist fyrst á Facebook-síðu Lóaboratóríum 7. janúar 2018 með færslutextanum: 7. janúar. Aldrei friður. Hún er að reyna að hafa það náðugt og miðað við svipinn gengur það ágætlega. Enda er listakonan sjálf viðfangið og getur hún því búið til [...]

‚Hetjur‘ og tilfinning fyrir efa

2020-02-18T09:34:03+00:0018. febrúar 2020|

Bragi Ólafsson. Staða pundsins: sjálfsævisaga, en ekki mín eigin. Bjartur, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020. Það er alveg svakalega mikið að gerast í skáldsögu Braga Ólafssonar, Staða pundsins. Samt gerist eiginlega ekki neitt, eins og títt er í sögum hans, en eins og hann bendir á í viðtali þá gerir hann [...]

Elskuleg óreiða og hryllilegri hlutir

2020-01-22T13:45:36+00:009. janúar 2020|

Eftir Úlfhildi Dagsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2019   „Þarna voru stærðfræðileg form sem jafnvel Eviklíð ætti í vandræðum með að nefna – keilur mismunandi óreglulegar og strýtulaga, hjallar í ögrandi hlutföllum, stokkar með undarlegum þrútnum stækkunum, brotnar súlur í furðulegum mynstrum, og fimm arma eða fimm ása byggingar sinnissjúks hryllileika.“[1] Þessi [...]

Laun, líf og lyst

2019-10-10T18:37:53+00:003. október 2019|

Guðjón Ragnar Jónasson. Hin hliðin. Sæmundur, 2018. 95 bls. Ólafur Gunnarsson. Listamannalaun. JPV útgáfa, 2018. 221 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2019 Hin hliðin, Guðjón Ragnar Jónasson, 2018 „Af hverju heilsarðu ekki upp á pabba þinn?“ sagði vinkona mín hneyksluð. Hún var á leið út af kaffihúsinu á Laugavegi 22 [...]

Ása-Þór og förin til Hollywood

2019-08-21T16:13:48+00:0014. ágúst 2019|

Eftir Úlfhildi Dagsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2014   Úlfhildur Dagsdóttir „Hann er bróðir minn,“ segir Thor, ásakandi, þegar Loki er sagður geðveikur. Og bætir við í hasti, eftir að hafa verið tjáð að Loki hafi drepið fjölda manns; „Hann er ættleiddur“. [1] Einhverjir eru kannski byrjaðir að rifja upp [...]

Dularfulla húsið og myrkrið í mannssálinni

2019-05-16T11:44:42+00:0016. apríl 2019|

Hildur Knútsdóttir: Ljónið. JPV útgáfa, 2018. 410 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2019 Það barst hár dynkur innan úr skápnum. Þær hrukku báðar við. Þegar Elísabet opnaði skápdyrnar lá græni ullarkjóllinn á gólfinu. „Oh, þetta er alltaf að gerast,“ sagði Elísabet um leið og hún beygði sig niður til að hengja kjólinn [...]

Forneskja, myrkraverk og ungmenni

2019-05-16T11:54:07+00:0011. september 2018|

Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttur. Endalokin: Útverðirnir og Gjörningaveður. Bókabeitan, 2016 og 2017. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2018 Árið 2011 hóf göngu sína athyglisverður íslenskur bókaflokkur sem ber nafnið Rökkurhæðir. Höfundar eru tveir, Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir og bækurnar eru nú orðnar níu. Fyrstu bækurnar tvær voru Rústirnar [...]

Ævintýraþokan

2019-05-16T11:56:42+00:0031. maí 2018|

Stefán Máni. Skuggarnir. Sögur, 2017. 315 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2018 Húsið er úr steini, það er tvílyft með tómum gluggum og hálfhrundu þaki – og það stendur neðan við grasi gróna brekku. Þokan streymir úr norðri, rök og köld – hún teygir fram gegnsæjar hendur og hvítir fingur hennar gæla [...]

Eyðiland

2019-05-22T17:13:45+00:007. desember 2017|

Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Eyland. Benedikt, 2016. Kristján Atli. Nýja Breiðholt. Draumsýn, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2017 Heimsendir nýtur afskaplega mikilla vinsælda um þessar mundir – eins og reyndar jafnan, því ef bókmennta- og listasaga síðustu aldar er skoðuð einkennist hún mjög af heimsendum og má auðveldlega rekja þennan áhuga langt aftur [...]

Innviðir skáldskaparins

2019-05-22T17:13:49+00:006. september 2017|

Álfrún Gunnlaugsdóttir. Fórnarleikar. Mál og menning, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2017 Hús ættarinnar tekur miklum breytingum í skáldsögu Álfrúnar Gunnlaugsdóttur, Fórnarleikar. Sagan segir frá fjórum kynslóðum sem búa í þessu húsi, einhversstaðar nærri miðbæ Reykjavíkur, samskiptum þeirra, minningum, arfleifð og átökum. Framvindan er nokkuð línuleg og byggist á öru flökti milli [...]