Þú ert hér://Tag: Sumarliði V. Snæland Ingimarsson

Fögnum öllum nýjum litbrigðum

2026-10-16T14:40:52+00:004. júní 2026|

Það var yndislegt veður, hlýtt, blæjalogn og ofurlítill úði úr lofti, þegar Leikhópurinn Lotta frumsýndi í tuttugasta sinn barnasýningu úr eigin smiðju. Í ár er það Litaland sem tryggir aðdáendur kannast við – jafnvel svo vel að þeir geta sungið með lögunum – en verkið var síðast sýnt fyrir tíu árum. Ekkert af börnunum á [...]

Heimsókn í Hundraðekruskóg

2024-06-21T11:52:51+00:0020. júní 2024|

Leikhópurinn Lotta er sestur að í Ævintýraskóginum í Elliðaárdal – nema hvað nú heitir hann Hundraðekruskógurinn og titilpersóna nýja söngleiksins er enginn annar en sjálfur Bangsímon. Höfundur og leikstjóri er Anna Bergljót Thorarensen sem líka semur ágæta söngtexta ásamt Baldri Ragnarssyni en höfundar fjörugra laga eru Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Danshöfundur er Sif Elíasdóttir Bachmann [...]

Fjöruleikir

2024-01-14T16:28:50+00:0014. janúar 2024|

Leikfélagið Reine Mer frumsýndi í dag látbragðsleikinn og hálfgrímusýninguna Ég heiti Steinn  í Tjarnarbíó. Höfundur er Lucas Rastoll-Mamalia sem einnig leikstýrir og gerir myndbönd; skemmtilegar grímurnar eru eftir Francescu Lombardi, lýsingu hannar Juliette Louste og Sacha Bernardson sér um tónlistina. Sýningin er orðlaus en leikararnir gefa frá sér mjög skiljanleg hljóð! Steinn litli (Lucas Rastoll-Mamalia) [...]

Ekki er allt sem sýnist

2019-04-30T13:48:57+00:0015. júní 2017|

Við Arnmundur og Aðalsteinn fórum í Elliðaárdalinn í gær – öðru nafni Ævintýraskóginn – til að hitta Ljóta andarungann og fleiri ævintýrapersónur í nýjasta stykki Leikhópsins Lottu. Veðrið var himneskt og gleðin sönn hjá ungum og öldnum. Gamla ævintýrið hans Hans Christians Andersen um svanaunga sem fæðist í andahreiðri gefur tækifæri til að ræða ýmis [...]