Þú ert hér://Tag: Söguloftið

Þeim var ég verst

2025-02-09T12:41:23+00:009. febrúar 2025|

Í gærkvöldi var frumsýning á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar sagði Vilborg Davíðsdóttir okkur Laxdæla sögu – eins og má ímynda sér að sögumenn í baðstofum fortíðar hafi sagt hana, hver á sinn hátt. Vilborg hefur unnið með þessa Íslendingasögu lengi og það er ekki bara að hún kunni hana, hún hefur hana algerlega [...]

Mundi og Bóbó hjá ömmu Gógó í Ameríku

2020-06-11T14:41:37+00:007. júní 2020|

Það er ekkert langt síðan við vorum síðast minnt á fjölskylduna í Gamla húsinu í Thulekampinum, Tómas kaupmann, Karólínu spákonu, Gógó dóttur hennar, öll börnin hennar Gógóar og barnabörn, Þjóðleikhúsið setti upp nýjan söngleik byggðan á Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjunni haustið 2016 eins og við munum. Í gærkvöldi voru kynnin við þetta geðríka [...]

Sýning fyrir allar ömmur

2020-02-09T12:57:50+00:009. febrúar 2020|

Auður Jónsdóttir rithöfundur frumsýndi í gærkvöldi sýninguna Auður og Auður á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar segir hún frá sambandi sínu við ömmu sína, Auði Sveinsdóttur Laxness, og tímabilinu sem hún fjallar um í bókinni Ósjálfrátt frá 2012. Auður byrjar hversdagslega dramatískt. Hún er stödd í eldhúsinu hjá ömmu sinni á Gljúfrasteini, rúmlega tvítug [...]

Grettir í Borgarnesi

2019-03-15T12:25:45+00:004. mars 2018|

Þetta var Borgarneshelgin mikla og væri hægt að fjölyrða um hve glæsilega staðurinn tók sig út í björtu góuveðrinu. Í gær og í dag var ég í einkar ánægjulegum æfingabúðum með kórnum mínum, Senjórítunum, á Hótel Borgarnesi (kom raddlaus til baka), en áður en að þeim kom fórum við hjónin í Landnámssetrið á föstudagskvöldið og [...]

Úr örbirgð til auðæva – og aftur til baka – og baka

2019-05-06T16:28:05+00:0024. september 2016|

Söguloftið á Landnámssetrinu í Borgarnesi hefur hýst marga góða sagnamenn og löngu kominn tími til að rifja upp sögu mannsins sem byggði á sínum tíma húsið sem landnámssýningin, Eglusýningin og Söguloftið eru í, Thors Jensen. Thor var rúmlega tvítugur þegar hann tók við verslunarrekstri í Borgarnesi og tók rækilega til hendinni þau ár sem hann [...]

Skálmöld á Sögulofti

2019-05-20T17:03:21+00:007. mars 2015|

Mynd: Hari Kjartan Ragnarsson, einn af aðstandendum Landnámsseturs í Borgarnesi, sagði eftir frumsýninguna á Skálmöld í gærkvöldi að Einar Kárason væri eins konar húsköttur þeirra á Söguloftinu, hann væri búinn að vera með svo margar sýningar þar. Og miðað við nýju sýninguna er ekkert undarlegt við vinsældir Einars á staðnum. Hann er fantagóður [...]