Þú ert hér://Tag: Snorri Engilbertsson

Skapað að skilja

2019-06-12T15:06:16+00:0021. september 2013|

Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason var frumsýnt i Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Unu Þorleifsdóttur. Eins og nafnið bendir til er þetta átakanleg og býsna nöturleg mynd úr íslenskum samtíma en því miður líka óþægilega sannferðug. Sigrún (Elma Stefanía Ágústsdóttir) er lögfræðinemi og Ragnar (Snorri Engilbertsson) vinnur á fasteignasölu sem hann á part í. [...]

Saga skjótta hestsins

2019-06-12T15:52:15+00:0021. apríl 2013|

Sjaldan hef ég á langri leikhúsævi séð leikara „taka salinn“ eins og Atli Rafn Sigurðarson gerði í gær á frumsýningu Engla alheimsins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Ekki aðeins ávarpa salinn og gera hann að trúnaðarmanni sínum heldur stjórna honum eins og stórum kór eða sinfóníuhljómsveit. Enda „átti“ Atli Rafn sviðið alla sýninguna út í gegn [...]

Dagur í lífi Johnnys Roosters Byron

2019-06-18T11:59:19+00:0024. febrúar 2013|

Ég kom algerlega bláeygð á Fyrirheitna landið í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Af einhverjum ástæðum hafði ég ekkert heyrt og ekkert lesið um verkið, ekki einu sinni um öll verðlaunin og viðurkenningarnar sem það hefur fengið, bara séð auglýsingarmyndina af Hilmi Snæ á netbol, með lúmskt glott á fallegu andlitinu og sígarettu milli fingranna. Augljóst er [...]

„Við erum rétt að byrja“

2019-06-18T17:38:03+00:0027. desember 2012|

Á undanförnum árum og áratugum hafa ótal ritgerðir og bækur verið skrifaðar um hegðun einræðisherra og harðstjóra út frá karakterum eins og Adolf Hitler, Jósep Stalín og Maó. Því væri eðlilegt að samtímaleikskáld okkar gæti samið gott verk um fyrirbærið. En það kemur á óvart að Shakespeare (f. 1564, d. 1616) skuli hafa vitað nákvæmlega [...]

Ólíkindalæti

2019-06-19T11:29:32+00:0013. október 2012|

Gagnrýnendur eru sem kunnugt er þekktir fyrir að fyrirlíta gamanleiki og farsa, helstu kassastykki leikhúsanna, þeir (gagnrýnendurnir) eru auðvitað svo háfleygir að það rignir upp á nasirnar á þeim og þess vegna þola þeir ekki að fólk bara skemmti sér í leikhúsinu. Nú vil ég alls ekki vera af þessari sort, enda leiðist mér yfirleitt [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]