Þú ert hér://Tag: Silja Aðalsteinsdóttir

Með fullt hús af hlæjandi áhorfendum

2019-06-19T11:46:31+00:003. september 2017|

Þeir eru orðnir svolítið grárri um höfuðið strákarnir í Með fulla vasa af grjóti en þeir hafa sannarlega engu gleymt og reynast eiginlega alveg eins fimir og kraftmiklir og áður. Þjóðleikhúsið tekur nú upp í þriðja sinn þessa feiknalega vinsælu sýningu á verki Marie Jones um tvo lánlitla pilta í írsku sveitaþorpi og „kvikmyndaævintýri“ þeirra; [...]

Ár englanna og ofurfóstrunnar

2019-04-03T15:16:23+00:0022. apríl 2014|

Leikhúsárið 2013 Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2014 Hvernig var leikhúsárið 2013 í Reykjavík? Eitthvað sérstaklega minnisstætt – fyrir hvað það var gott, merkilegt, nú, eða vont? Á einkalista mínum kemur í ljós að mér hafa þótt þrjár sýningar mjög áhrifamiklar, þrjár afspyrnuvondar og afgangurinn þar á milli, er það [...]

Heimsókn í gamalt safn

2019-10-24T16:31:21+00:0029. nóvember 2010|

Matthías Johannessen. Vegur minn til þín. Ástráður Eysteinsson annaðist útgáfuna og ritaði eftirmála. Háskólaútgáfan, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2010. Matthías Johannessen Nýjasta ljóðabók Matthíasar Johannessen, Vegur minn til þín, er falleg bók, í óvenjulegu en smekklegu broti og með listrænum ljósmyndum eftir Önnu Jóa myndlistarkonu á kaflaskilum og á [...]

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús [...]

Á líðandi stund

2019-05-10T11:12:30+00:0016. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008 Mér hefur alltaf fundist Grænland minna en Ísland – óljós hvít klessa fyrir ofan stórt hvítdoppótt Ísland. En reyndar hef ég aldrei velt fyrir mér stærðarmun landanna fyrr en í september síðastliðnum. Þá var haldin í bænum Qaqortoq á suð-vestur Grænlandi, þar sem hét [...]

Pílagrímsferð til Parísar

2019-05-10T11:13:46+00:002. maí 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2008 Eina fermingargjöfin mín sem enn er í notkun er bókin Íslenskir pennar – sýnisbók íslenskra smásagna á tuttugustu öld sem Setberg gaf út 1956. Hún var mikill happafengur. Strax fjórtán ára kynntist ég mörgum helstu höfundum þjóðarinnar, meðal annars ungliðunum Thor Vilhjálmssyni, Indriða G. [...]