Þú ert hér://Tag: Silja Aðalsteinsdóttir

Lífið séð í ljósi dauðans

2019-03-13T17:11:27+00:0015. september 2018|

Áður en ég settist við að skrifa um sýninguna Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, sem var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, las ég viðtal við Charlotte Bøving í Fréttablaði dagsins. Þar segir hún frá sýningu sem hún er að vinna um dauðann, séðan frá lífinu. Mér fannst þetta skondið af því [...]

Sósíalisti með silkihanska

2019-05-16T11:54:48+00:0011. september 2018|

Styrmir Gunnarsson. Uppreisnarmenn frjálshyggjunnar, byltingin sem aldrei varð. Veröld,  2017. Með hliðsjón af bókunum Allt kann sá er bíða kann, æsku- og athafnasaga Sveins R. Eyjólfssonar eftir Silju Aðalsteinsdóttur og Í liði forsætisráðherra eða ekki eftir Björn Jón Bragason. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2018 Ef hægt er að gagnrýna bók Styrmis Gunnarssonar [...]

Getur þetta gerst hér?

2019-03-13T17:11:18+00:004. september 2018|

Hannesarholt troðfylltist óvænt í gærkvöldi þegar nýtt verk var leiklesið þar, Fáir, fátækir, smáir, eftir höfund sem ekki vildi láta nafns síns getið. Árni Kristjánsson leikstýrði og hafði hóað saman stórum hópi fagmanna til að flytja verkið. Helga Björnsdóttir sá um útlit sýningarinnar og Guðni Franzson um tónlistina. Fólk sem ólst upp við útvarpsleikritin sem [...]

Þegar ástin er hnefaleikur

2019-03-13T17:15:06+00:0024. ágúst 2018|

Það er sniðug hugmynd á bak við verkið Allt sem er fallegt í lífinu sem Mooz menningarfélag sýndi sem verk í vinnslu í Félagsheimili Seltjarnarness núna í vikunni: Það túlkar samskipti kynjanna sem æfingu í hnefaleik. Sviðið er afmarkað með tvílitri ljósrönd, blárri hans megin, rauðri hennar megin, það er autt fyrir utan tvo stólkolla [...]

Vitið þér enn, eða hvað?

2019-03-13T17:21:20+00:0018. júní 2018|

Það liggur í rauninni beint við að gera eins og Robert Wilson í Eddu, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu í gær á Listahátíð, að byrja hana í svarta myrkri: Ár var alda, það er ekki var, segir í Völuspá, var þar hvorki sandur né sær né svalar unnir … Við sátum sem sé þarna í [...]

Smánun og niðurlæging á netinu

2019-03-13T17:26:20+00:0026. maí 2018|

Við hjónin erum ekki beinlínis markhópurinn sem nýja íslensk-enska óperan Bergmálsklefinn í Tjarnarbíó miðar að. Það er tón-leikfélagið Aequitas Collective sem að henni stendur í samstarfi við Alþýðuóperuna og hún freistar þess að birta í tali, tónum og á stórum hengitjöldum á sviðinu það áreiti sem nútímamaðurinn verður fyrir. Einn miðill verksins er samskiptafyrirbærið Twitter [...]

Bestuvinaafmæli Odds og Sigga

2019-05-27T11:23:15+00:005. mars 2018|

Ég sá í morgun leikarana og fjörkálfana Odd Júlíusson og Sigurð Þór Óskarsson halda upp á tíu ára vináttuafmæli sitt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir fullan sal af líklega tíu ára börnum. Verkið sömdu þeir bestu vinir ásamt leikstjóra sínum, Birni Inga Hilmarssyni, og hafa verið að sýna víða um land síðan snemma í haust. [...]

Grettir í Borgarnesi

2019-03-15T12:25:45+00:004. mars 2018|

Þetta var Borgarneshelgin mikla og væri hægt að fjölyrða um hve glæsilega staðurinn tók sig út í björtu góuveðrinu. Í gær og í dag var ég í einkar ánægjulegum æfingabúðum með kórnum mínum, Senjórítunum, á Hótel Borgarnesi (kom raddlaus til baka), en áður en að þeim kom fórum við hjónin í Landnámssetrið á föstudagskvöldið og [...]

Frá Vestmannaeyjum til Vesturheims

2019-05-16T11:57:46+00:0020. febrúar 2018|

Þorvaldur Kristinsson. Helgi: Minningar Helga Tómassonar ballettdansara. Bjartur, 2017. 282 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2018 Við Helgi Tómasson dansari, danshöfundur og dansleikhússtjóri, erum nánast jafnaldra og ég hef vitað af honum frá því að ég var unglingur. Ung kona og eldri fylgdist ég af áhuga með fréttum af honum og sigrum [...]

Ljóð eru alltaf í uppreisn

2019-09-20T11:19:02+00:0027. september 2017|

Viðtal Silju Aðalsteinsdóttur við Sigurð Pálsson Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2006 Sigurður Pálsson er einn þekktasti og afkastamesti starfandi rithöfundur á landinu. Hann var hluti af hinni öflugu ljóðbylgju á miðjum áttunda áratug síðustu aldar og vinnur nú að þrettándu ljóðabók sinni sem væntanleg er í haust. Auk þess hefur hann sent [...]