Þú ert hér://Tag: Rebekka A. Ingimundardóttir

Tragíkómískur sjálfshjálparsöngleikur

2025-11-28T13:00:03+00:0028. nóvember 2025|

Þær  Sigríður Eir Zophoníasardóttir (Sigga) og Vala Höskuldsdóttir, meðlimir Hljómsveitarinnar Evu, frumsýndu fyrir einum sex vikum eða svo sýninguna Kosmískt Skítamix í Tjarnarbíó og ég sá hana loksins í gærkvöldi ásamt fullu húsi af glöðum gestum. Enginn leikstjóri er nafngreindur (enda höfundar báðir útskrifaðir af sviðshöfundabraut LHÍ) en dramaturg er Egill Andrason. Smekklega bjarta leikmynd og [...]

Grái herinn gerir atlögu

2023-01-09T15:52:41+00:008. janúar 2023|

Leikverkið Ég lifi enn – sönn saga var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Höfundar eru Þórey Sigþórsdóttir, Ásdís Skúladóttir og Rebekka A. Ingimundardóttir sem einnig er listrænn stjórnandi og leikstýrir ásamt Ásdísi. Juliette Louste annaðist bæði hreyfingar leikaranna og ljósahönnun, Hulda Dröfn Atladóttir sá um búninga en Hlín Agnarsdóttir var dramatúrg sýningarinnar. Þjóðirnar eru að [...]

Ástin er eilíf

2019-05-17T14:08:51+00:0025. apríl 2015|

Ellefu útskriftarnemar af leikarabraut Listaháskóla Íslands frumsýndu í gærkvöldi Að eilífu eftir Árna Ibsen í Smiðjunni undir stjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var upphaflega samið fyrir slíkan útskriftarhóp árið 1997 og ég man að sýningin olli mér vonbrigðum af ýmsum ástæðum. Það gerði ekki frumsýningin í gær. Hún var eldfjörug, hugmyndarík í stóru sem smáu og [...]

Geturðu fyrirgefið?

2019-06-12T11:04:46+00:0015. febrúar 2014|

Málamyndahópurinn rannsakar eðli fyrirgefningar í mannlegu samfélagi í leikverki Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Fyrirgefðu ehf, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundar. Sviðið er eftir Rebekku A. Ingimundardóttur, einfalt og snjallt, og leikur vel með ljósum Arnars Ingvarssonar. Í verkinu bregða fjórir leikarar sér í fjölmörg hlutverk starfsmanna og skjólstæðinga fyrirtækisins Fyrirgefðu ehf [...]

Gjörningahelgi

2019-06-12T15:32:38+00:0020. maí 2013|

Þau voru ólík verkin þrjú sem við sáum þessa helgi. Á laugardaginn rifjuðum við fyrst upp Sprengda hljóðhimnu vinstra megin og fengum svo að sjá glænýjan gjörning eftir Magnús Pálsson á eftir, Stunu, í Listasafni Reykjavíkur. Í gær fórum við í Gestaboð Hallgerðar ferðaþjónustubónda á Hlíðarenda í Fljótshlíð og kynntumst hennar skrautlegu ævi í túlkun [...]

Vogur vinnur, vínið tapar

2019-06-19T11:09:04+00:0020. október 2012|

Það skemmtilegasta við að blogga um leikhús er hvað maður fær að sjá fjölbreytta flóru. Uppgötva hvað fólk getur verið að fást við ótrúlega ólíka hluti eiginlega á sömu þúfunni. Kvöldið eftir há-fagurfræðilega upplifun í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fylgdumst við hjónin með meinfyndinni og dónalegri konu á fimmtugsaldri frá Hafnarfirði upplifa tráma lífs síns og [...]

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús [...]