Þú ert hér://Tag: Rán Ragnarsdóttir

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

Lífsháski ungra leikskálda

2024-11-10T13:35:53+00:0010. nóvember 2024|

Lokaviðburður á Unglist var Ungleikur í Tjarnarbíó, fimm stutt leikverk skrifuð af fólki í kringum tvítugt, valin úr hópi ennþá fleiri verka af sérstakri valnefnd. Listrænn ráðunautur og verkefnisstjóri var Magnús Thorlacius sem líka var kynnir á sýningunni í gær. Verkin taka fyrir ótrúlega ólík málefni en ekkert þeirra fjallar sérstaklega um unglingsárin sem manni [...]

Upplausn í úthverfinu

2024-02-26T12:03:56+00:0024. febrúar 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær á stóra sviði Borgarleikhússins bandaríska söngleikinn Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morissette og Diablo Cody, í þýðingu Ingólfs Eiríkssonar og Matthíasar Tryggva Haraldssonar og undir stjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Hljómsveitarstjóri er Karl Olgeirsson.  Söguna samdi Cody upp úr hljómplötunni Jagged Little Pill eftir Morissette sem kom út 1995 en söngleikurinn [...]

Tveir höfundar leita leikrits

2019-05-06T13:38:50+00:0021. október 2016|

Enn á ný býður Gaflaraleikhúsið upp á eldfjöruga unglingaskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Stefán rís eftir þá Arnór Björnsson og Óla Gunnar Gunnarsson var frumsýnt í gærkvöldi undir stjórn Bjarkar Jakobsdóttur fyrir troðfullu og ákaflega hamingjusömu húsi. Þeir félagar voru 14 og 15 ára þegar þeir frumsýndu Unglinginn á sama stað í október 2013 þannig að [...]

Glanni glæpur slær loksins í gegn

2019-05-27T13:46:45+00:0015. september 2014|

Glanni glæpur, önnur þekktasta persóna Latabæjarsjónvarpsþátta Magnúsar Scheving,  þreytist seint á að ergja sig á fólki sem stundar íþróttir og borðar hollan mat. Maður hefði kannski haldið að hann lærði eitthvað á síendurteknum misheppnuðum tilraunum sínum til að fá íbúa Latabæjar ofan af þessu en – nei. Hann er enn að og nú (aftur) á [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]