Þú ert hér://Tag: Ólafur Egill Egilsson

Er ímynd raunveruleiki?

2022-10-12T15:36:20+00:009. október 2022|

Það hafa heldur betur orðið umskipti á Kassa Þjóðleikhússins. Þar hafa veggir verið fjarlægðir í anddyri og rýmið opnað þannig að maður trúði varla sínum eigin augum. Ekki spillir skemmtileg notkun rimla úr Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar eins og þetta hús hét á sinni tíð. Það fór því einkar vel á því að fyrsta frumsýning eftir [...]

Ástarbréf yfir múrinn

2022-01-21T17:01:35+00:0021. janúar 2022|

Einleikurinn Það sem er, sem María Ellingsen frumsýndi í Tjarnarbíó í gærkvöldi, var upphaflega stutt skáldsaga, bréfasaga, sem þóttist kannski vera sönn: höfundurinn, Peter Asmussen, segist í inngangi hafa „fundið“ bréfin í fórum frænda síns eftir að hann lést. Þessi forsaga er ekki með í leiksýningunni, þar göngum við einfaldlega inn á bréfritarann, konuna Renate [...]

Skáldskapur á að vera sannar myndir af lífinu

2021-09-18T18:05:22+00:0018. september 2021|

Ólafur Egill Egilsson leikstjóri tekur fyrir hvert íkonið af öðru. Fyrst var það Elly, næst Bubbi og í gærkvöldi var frumsýnd í Kassanum rannsókn hans á lífi Ástu Sigurðardóttur, rithöfundar og myndlistarkonu. Ólafur er ekki að brjóta þessar helgimyndir en hann leggur sig fram um að vera heiðarlegur gagnvart þeim og þá kemur auðvitað í [...]

Nífaldur Bubbi Morthens

2020-03-17T17:07:50+00:0014. mars 2020|

Tvennt gerir mér einkum erfitt fyrir að skrifa um söngleikinn 9 líf eftir Bubba Morthens og Ólaf Egil Egilsson sem var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Ólafs Egils. Annað er hve margir hafa þegar tjáð sig í svo löngu og litríku máli um sýninguna á Facebook að það verður vandi að [...]

Hvað er að vera faðir?

2019-09-24T13:40:14+00:0020. september 2019|

Það er erfitt að fara ekki af stað með miklar væntingar þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit sem ber sama nafn og skáldsaga eftir margverðlaunaðan rithöfund sem hefur gert garðinn frægan víða um lönd. Leikritið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) eftir Auði Övu Ólafsdóttur er að vísu ekki leikgerð verðlaunaskáldsögunnar með þessu heiti enda [...]

Taka lífið og sóa því

2019-03-13T15:46:04+00:0010. nóvember 2018|

Við eignuðumst nýtt leikskáld í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Tvískinnung eftir Jón Magnús Arnarsson undir stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Jón Magnús er ljóðaslammari og textinn frjór og orðmargur, iðulega rímaður sem gefur honum óvenjulegt yfirbragð. Þetta er samt ekki rómantískt verk heldur fremur sprottið úr óvægnum heimi djamms, eiturlyfja og hasarmynda enda hittum við [...]

Lífið séð í ljósi dauðans

2019-03-13T17:11:27+00:0015. september 2018|

Áður en ég settist við að skrifa um sýninguna Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, sem var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, las ég viðtal við Charlotte Bøving í Fréttablaði dagsins. Þar segir hún frá sýningu sem hún er að vinna um dauðann, séðan frá lífinu. Mér fannst þetta skondið af því [...]

Glæpurinn eða refsingin

2019-04-03T16:57:59+00:0022. september 2017|

Flókin fjölskyldumál eru viðfangsefni Tyrfings Tyrfingssonar í Kartöfluætunum sem voru frumsýndar á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir styrkri og hugmyndaríkri stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Þetta er þriðja verk Tyrfings sem ég sé á sviði; síðast var það Auglýsing ársins en þar áður Bláskjár og einþáttungurinn Skúrinn á sléttunni. Að mínu mati – alla vega [...]

Fátæktin var mín fylgikona

2019-05-27T11:27:16+00:009. apríl 2017|

Það verður ekki tekið frá honum Þorleifi Erni Arnarssyni, honum tekst að koma manni á óvart. Það tókst honum líka í gærkvöldi, þó nokkrum sinnum. Sýningin var Álfahöllin hin umrædda á stóra sviði Þjóðleikhússins, eins konar revía um leikhúsið – sjálft fyrirbærið Þjóðleikhús Íslendinga, bæði hús og stofnun – og samfélag okkar á þessari stundu. [...]

Sunnudagskvöld með Elly

2019-05-03T11:31:33+00:0020. mars 2017|

Hvað á maður að segja um þessa stúlku? Þessa ungu leikkonu sem lætur Elly Vilhjálms lifna á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, andlit, líkama og rödd? Þessa Katrínu Halldóru Sigurðardóttur? Líklega er best að segja bara HÚRRA! Fyrir sýninguna Elly hefur Nýja sviði verið breytt í skemmtistað sem gæti minnt á dansstaðina í Reykjavík um 1960 [...]