Þú ert hér://Tag: Ólafur Ásgeirsson

Tekist á í viðtengingarhætti

2026-10-16T14:18:52+00:0023. september 2026|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í síðustu viku í Kassanum nýtt verk eftir Kriðpleirsliðann Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli. Björn Thors leikstýrir en leikmynd og búninga sjá þær um Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir. Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu, Margrét Bjarnadóttir um sviðshreyfingar,  tónskáld  er Örvar Smárason en þeir Þóroddur Ingvarsson skapa saman sérkennilegan og [...]

Var lífið betra þá?

2025-10-13T12:25:16+00:0013. október 2025|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á laugardagskvöldið í Samkomuhúsinu gamanleikinn Elskan, er ég heima? (Home, I‘m Darling) eftir enska leikskáldið Lauru Wade í ágætri þýðingu Vilhjálms B. Bragasonar. Leikstjóri er Ilmur Kristjánsdóttir. Börkur Jónsson hannar leikmyndina en Björg María Gunnarsdóttir búninga, Sigurjón Kjartansson sér um tónlist en Gunnar Sigurbjörnsson um hljóð og Lárus Heiðar Sveinsson um lýsingu. [...]

Allir alltaf í boltanum

2023-03-07T11:32:05+00:003. mars 2023|

Enn einn smellurinn var frumsýndur í Tjarnarbíó í gærkvöldi, nú af leikhópnum Alltaf í boltanum, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar eftir Ólaf Ásgeirsson og Svein Ólaf Gunnarsson. Leikararnir fimm eru allir karlar en á bak við eru konurnar: Viktoría Blöndal leikstýrir af sönnum krafti, Sólbjört Vera Ómarsdóttir sér um sviðsmynd þar sem goðið sir Alex Ferguson trónir [...]

„Í góðsemi vegur þar hver annan“

2022-12-30T10:36:38+00:002. desember 2022|

Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason frumsýndi í gærkvöldi leikrit sitt Hið ósagða í Tjarnarbíó, svartan gamanleik sem afhjúpar af miskunnarleysi sjálfselska beiskju nútímafólks. Sjálfur leikur Sigurður eitt hlutverkið í leiknum auk þess sem hann bæði leikstýrir og framleiðir sýninguna. Kvikmyndin sem við sjáum á baktjaldi er eftir hann líka, óteljandi klipp héðan og þaðan í ógnarhraðri framrás [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]

Nei, þetta er ágæt hugmynd

2021-02-05T14:48:29+00:005. febrúar 2021|

Það var sérkennilegt að sitja í Tjarnarbíói í hálfan annan klukkutíma og horfa á leiksýningu sem var aðallega á tungumáli sem ég skil ekki. Þetta var frumsýning leikhópsins PólÍs á verki sínu Co za poroniony pomysł sem útleggst „Úff hvað þetta er slæm hugmynd“. En greinilega skildu margir í húsinu vel það sem fram fór [...]

Ástin er eilíf

2019-05-17T14:08:51+00:0025. apríl 2015|

Ellefu útskriftarnemar af leikarabraut Listaháskóla Íslands frumsýndu í gærkvöldi Að eilífu eftir Árna Ibsen í Smiðjunni undir stjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var upphaflega samið fyrir slíkan útskriftarhóp árið 1997 og ég man að sýningin olli mér vonbrigðum af ýmsum ástæðum. Það gerði ekki frumsýningin í gær. Hún var eldfjörug, hugmyndarík í stóru sem smáu og [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]