Þú ert hér://Tag: Matthías Tryggvi Haraldsson

Hve glöð er vor æska

2025-03-15T17:12:22+00:007. mars 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi við mikinn fögnuð gesta söngleikinn Storm eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Unu Torfadóttur. Unnur Ösp leikstýrir; tónlist og textar eru eftir Unu nema eitt lag samdi hún með tónlistarstjóranum Hafsteini Þráinssyni og svo fengum við að heyra brot úr frægum lögum eftir aðra þegar mikið lá við. Glæsilega og afar snjalla [...]

Upplausn í úthverfinu

2024-02-26T12:03:56+00:0024. febrúar 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær á stóra sviði Borgarleikhússins bandaríska söngleikinn Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morissette og Diablo Cody, í þýðingu Ingólfs Eiríkssonar og Matthíasar Tryggva Haraldssonar og undir stjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Hljómsveitarstjóri er Karl Olgeirsson.  Söguna samdi Cody upp úr hljómplötunni Jagged Little Pill eftir Morissette sem kom út 1995 en söngleikurinn [...]

Ekki fyrir viðkvæma

2023-05-15T12:32:40+00:0027. apríl 2023|

Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk endurfrumsýndi verkið Stelpur og stráka eftir Bretann Dennis Kelly í Tjarnarbíó í gærkvöldi eftir leikferð um landið. Þetta er glænýtt leikrit, frumsýnt í London 2018, og hefur vakið mikla athygli enda svo ágengt að kalla má sjokkerandi. Matthías Tryggvi Haraldsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir þýða textann, Annalísa Hermannsdóttir á snjalla leikmyndina og [...]

Sæunn fær orðið

2022-10-29T11:00:43+00:0029. október 2022|

Besti vinur minn sór þess snemma dýran eið að verða leiðinlegt og erfitt gamalmenni. Auðvitað hlógum við að honum en stundum tekst honum ætlunarverkið, það verð ég að viðurkenna, oftar samt ekki. Sæunn (Guðrún S. Gísladóttir) í nýju leikriti Matthíasar Tryggva Haraldssonar, sem frumsýnt var á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, veit að það eru [...]

Ekkert er að, ekki neitt

2020-09-07T22:01:55+00:007. september 2020|

Aðstandendur nýju óperunnar, Ekkert er sorglegra en manneskjan, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi, hafa tekið áhorfendum sínum vara fyrir að sjá söguþráð út úr verkinu. Það er „póstdramatískt“, segja þeir Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Adolf Smári Unnarsson leikstjóri og textahöfundur. En það er hrikalega erfitt að byrja ekki undir eins að spinna sögu [...]

Fimm fræknir á hraðnámskeiði í skattsvikum

2020-03-17T17:17:21+00:0013. mars 2020|

Það fór fram merkileg kennslustund í salnum á þriðju hæð Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þar freistuðu félagarnir fimm í leikhópnum Ást og karókí þess að kenna áhorfendum að svíkja undan skatti með því að koma peningunum sínum fyrir í skattaskjóli. Afleitt efni í leiksýningu? Annað kom á daginn! Sýningin Skattsvik Development Group hefst á símtali um [...]

Tvö ljóð

2019-05-21T14:47:04+00:0020. maí 2019|

Eftir Matthías Tryggva Haraldsson Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2014 Viljaþula Ég vil að þú hringir en bara ef þú vilt það Ég vil hringja í þig en bara ef þú vilt það Ég vil vera með þér en bara ef þú vilt það Ég vil að við tölum Ég vil vera þinn [...]

Næturævintýri

2019-05-08T10:25:19+00:0028. janúar 2019|

Einþáttungarnir sem saman mynda nýskáldasýninguna Núna 2019 í Borgarleikhúsinu gerast allir mjög seint um kvöld eða að næturþeli. Og sem kunnugt er getur þá allt gerst, bæði í vöku og draumi – sem líka eiga það til að renna saman. Rannveig og Axel (Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson) eru í kósídvöl uppi í [...]

Dauðleikinn er uppstillt baðherbergi

2019-03-13T16:50:50+00:004. október 2018|

Leikhópurinn Allir deyja frumsýndi í gærkvöldi Griðastað eftir Matthías Tryggva Haraldsson í Tjarnarbíó. Verkið er að uppruna útskriftarverkefni Matthíasar úr Listaháskólanum og hann leikstýrir sjálfur. Ég varð fyrst vör við Matthías Tryggva fyrir þrem árum á Ungleik í Borgarleikhúsinu, þar átti hann metnaðarfullt verk um heimsendi og sannleikann (hvorki meira né minna) en hafði ekki [...]

„Eins og brú yfir ólgandi flaum“

2019-04-30T14:01:30+00:004. júní 2017|

Það var ansi skemmtilegt að sjá strákana í leikhópnum Ást og karókí fjalla um karlhlutverkið og karlmennskuna svo skömmu á eftir Reykjavíkurdætrum fjalla um kvenlegt hlutskipti í Borgarleikhúsinu. Piltarnir eru ekki komnir eins hátt á strá og stúlkurnar en þeir hafa þó fengið inni fyrir verk sitt, Sýningu um glímu og Slazenger, hjá Leikfélagi Kópavogs [...]