Þú ert hér://Tag: María Thelma Smáradóttir

Vitið þér enn – eða hvað?

2024-01-09T09:22:06+00:0027. desember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikverkið Eddu eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur, Jón Magnús Arnarsson og Þorleif Örn Arnarsson sem einnig var leikstjóri sýningarinnar. Leikmyndina með sínum stílfærða Aski Yggdrasils fyrir miðju hannaði Vytautas Narbutas. Áheyrileg tónlist og flókin hljóðhönnun var í höndum Sölku Valsdóttur, Egils Andrasonar og Arons Þórs Arnarssonar en Salka var tónlistarstjóri. Karen Briem [...]

Sögulegt verk í sögulegri sýningu

2023-03-17T12:08:33+00:0017. mars 2023|

Leikhópurinn Elefant frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum eigin leikgerð af skáldsögu Halldórs Laxness frá 1943–6, Íslandsklukkunni, í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Leikstjóri er Þorleifur Örn Arnarsson sem einnig gerir leikgerðina ásamt Bjarti Erni Bachmann, Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og leikhópnum. Íslandsklukkan er stór skáldsaga með fjölmörgum persónum og miklum atburðum sem ýmist eru sögulegir eða skáldaðir og [...]

Ævintýri Djöfulsins í Moskvu

2019-12-27T16:36:07+00:0027. desember 2019|

Rithöfundar eru öfundsverðir, sérstaklega skáldsagnahöfundar. Þeir geta búið til nýjan veruleika og haft hann algerlega eins og þeim sýnist, látið hvað sem er gerast og notið þess. Þetta nýtti rússneska sagnaskáldið Mikhaíl Búlgakov sér rækilega í Meistaranum og Margarítu, en leikgerð Niklas Rådström af þeirri sögu var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir [...]

Saga frá brosandi landi

2019-05-27T11:18:32+00:003. febrúar 2019|

Sýning Maríu Thelmu Smáradóttur og Trigger Warning í Kassanum, sem var frumsýnd í gær, Velkomin heim, hefst á um það bil fimmtán mínútna þokkafullum dansi leikkonunnar á svörtu spegilgólfi leikmyndar eftir Eleni Podara. Á fingrunum er María Thelma með gervineglur úr málmi, um það bil handarlangar, sem munu vera hefðbundinn búnaður í ákveðinni tegund af [...]

Mitt, þitt og okkar

2019-05-27T11:22:23+00:007. janúar 2018|

Í Kúlu Þjóðleikhússins var í dag frumsýnt leikverkið Ég get eftir Peter Engkvist, góðkunnan sænskan leikhúsmann, leikskáld, leikstjóra og leikhússtjóra, sem hefur áður glatt okkur hér á landi á ýmsan hátt gegnum tíðina. Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir þeim Stefáni Halli Stefánssyni og Maríu Thelmu Smáradóttur sem fá að leika sér í anda tveggja til fimm [...]

Á Íslandi erlendis

2019-05-27T11:21:45+00:0028. október 2017|

Ragnar Bragason hefur gert „öðruvísi“ utangarðsmenn að efni leikverka sinna – fólk sem af afar ólíkum ástæðum er utan við samfélag okkar „hinna“. Í Gullregni (2012) var það fólk sem alheilbrigt lifir á örorkubótum – kerfinu; í Óskasteinum (2014) voru það smákrimmar sem ætla að ná sér rækilega niðri á kerfinu með einu góðu bankaráni. [...]

Veruleikaflótti í raunveruleikaþætti

2019-05-08T11:13:39+00:001. maí 2016|

Það er stöðugur höfuðverkur umsjónarmanna með leiklistarnemum að finna verk sem passar fyrir hópinn, helst þannig að öll fái þau gott efni til að glíma við. Í ár hélt leikarabraut LHÍ leikritasamkeppni, eins og hefur verið gert stöku sinnum áður, og verkið sem sigraði, Við deyjum á Mars eftir Jónas Reyni Gunnarsson, er nú sýnt [...]