Þú ert hér://Tag: Máni Svavarsson

Þetta verður ALLT Í LÆ

2026-10-16T14:09:48+00:0010. október 2026|

Á fimmtudagskvöldið frumsýndi Gaflaraleikhúsið í Bæjarbíói í Hafnarfirði uppistandið eða farsann eða söngleikinn Þetta reddast eftir Selmu Björnsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Björk Jakobsdóttur sem líka leika öll hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Óli Gunnar Gunnarsson, tónlistin er eftir Mána Svavarsson, Sölku Sól og Selmu, leikhópurinn sér um búninga en leikmynd hönnuðu Óli Gunnar, Freyr [...]

Tvöföld hamingja

2024-11-03T14:46:31+00:003. nóvember 2024|

Ein minningarperlan úr leikhúsi í áranna rás er Himnaríki Árna Ibsen, „geðklofni gamanleikurinn“ sem Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör frumsýndi haustið 1995. Gaflaraleikhúsið rétt missir af að halda upp á þrítugsafmæli þeirrar sýningar með sýningu sinni á gamanleiknum Tómri hamingju á Nýja sviði Borgarleikhússins en Tóm hamingja er „geðklofin“ á sama hátt og Himnaríki: verkið er [...]

Drottningin heimsækir Bæjarbíó

2023-10-03T09:41:31+00:002. október 2023|

Gaflaraleikhúsið frumsýndi í gær barnasýninguna Drottningin sem kunni allt nema ... eftir leikhópinn og Björk Jakobsdóttur sem líka leikstýrir. Í húsnæðisvanda sínum hefur hópurinn fengið inni í Bæjarbíói í Hafnarfirði, því fornfræga húsi sem kallar fram ótal minningar um myrkar og dularfullar sænskar og ítalskar bíómyndir frá sjöunda áratugnum. Það var sannarlega ekkert myrkt eða [...]

Sælla er að gefa en þiggja

2022-11-28T15:34:10+00:0027. nóvember 2022|

Þau voru að sprengja enn eina gleðisprengjuna í Gaflaraleikhúsinu, Jól á náttfötunum eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem þeir leika líka ásamt Karli Olgeirssyni píanóleikara. Lögin smellnu semja þeir Jón Ólafsson og Máni Svavarsson, ljósunum sem taka fullan þátt í sýningunni stýrir Freyr Vilhjálmsson og leikstjóri er að sjálfsögðu Björk Jakobsdóttir sem líka sér [...]

Matarlist í Hafnarfirði

2019-05-20T16:45:49+00:001. mars 2015|

Gaflaraleikhúsið heldur uppi heiðri grínsins þessi misserin og ekki er hann slakur farsinn sem Gunnar Helgason og Felix Bergsson hafa kokkað saman og kalla Bakaraofninn. Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti. Gott að geta látið nægja að skrifa. Þeir fengu sem sagt [...]

Glanni glæpur slær loksins í gegn

2019-05-27T13:46:45+00:0015. september 2014|

Glanni glæpur, önnur þekktasta persóna Latabæjarsjónvarpsþátta Magnúsar Scheving,  þreytist seint á að ergja sig á fólki sem stundar íþróttir og borðar hollan mat. Maður hefði kannski haldið að hann lærði eitthvað á síendurteknum misheppnuðum tilraunum sínum til að fá íbúa Latabæjar ofan af þessu en – nei. Hann er enn að og nú (aftur) á [...]