Þú ert hér://Tag: Lilja Nótt Þórarinsdóttir

Fæst hvorki skipt né skilað

2020-02-24T15:32:01+00:0010. febrúar 2020|

„Komið eins og þið eruð. Með barn á brjósti eða ekki. Svefnvana eða alsælar eftir heila nótt af ótrufluðum svefni … Endilega gefðu barninu þínu brjóst á meðan og við eigum fullt af auka bleyjum.“ Hvenær höfum við séð slíka auglýsingu fyrir leiksýningu? En svona kynna fjórar leikkonur sýningu sína Mæður sem var frumsýnd í [...]

Sterkastur er sá sem stendur einn

2019-05-27T11:27:10+00:0023. september 2017|

Fyrsta frumsýning haustsins á stóra sviði Þjóðleikhússins, ein hátíðlegasta stund ársins. Freyðivín í fordrykk, forsetinn í húsinu, margir í sínu besta pússi. Eiginlega leitt að ekki skyldi vera hlé til að maður gæti notið þess betur að horfa á hátísku haustsins 2017 allt í kringum sig. Og svo var verkið klassískt og þó brýnt: Óvinur [...]

„Nóttin er til þess að gráta í“

2019-05-20T13:36:43+00:0023. mars 2015|

Við sáum loksins Segulsvið Sigurðar Pálssonar í gærkvöldi í Kassa Þjóðleikhússins, undrafagra sýningu þar sem hvað styður annað: margslungið leiksvið Gretars Reynissonar, táknvísir búningar Þórunnar Maríu Jónsdóttur, snjöll lýsing og ævintýraleg myndbandshönnun Halldórs Arnar Óskarssonar og Magnúsar Arnars Sigurðarsonar og skemmtileg hljóðmynd Úlfs Eldjárn og Kristjáns Sigmundar Einarssonar. Öllu haldið saman af óbrigðulum smekk leikstjórans, [...]

Kolumkilli var hér

2019-05-22T12:30:18+00:0027. desember 2014|

Byrjunin á sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu er bæði snjöll og áhrifarík. Þó sést í útgefinni leikgerð að handritshöfundar hafa ekki ætlað að láta sýninguna byrja svona. Hugmyndin hefur komið seint til. Ung hjón standa fyrir miðju framsviði, þögul, hlið við hlið, en í stúkunni til hliðar sitja roskin hjón, mun glæsilegar búin en [...]

Eyvindur og Halla á atómöld

2019-08-21T16:27:51+00:0030. október 2011|

Það hræðilegasta hefur gerst: hryðuverkamenn hafa kastað atómsprengju á borgina og allir hafa farist. Nema Markús (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og Lísa (Lilja Nótt Þórarinsdóttir) af því að Markús var svo snarráður að bjarga Lísu meðvitundarlausri á ögurstundu ofan í sprengjubyrgið sitt. Þannig hefst leikrit Dennis Kelly  sem leikhópurinn SuðSuðVestur frumsýndi í Tjarnarbíói í gærkvöld undir [...]

Saga um háar hugsjónir, ást – og svik

2019-08-08T15:18:19+00:0024. apríl 2010|

Best að segja það strax: Sýning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness er vel heppnuð. Um margt ólík öllum þeim sex uppsetningum sem ég hef séð áður á verkinu, um margt hugmyndaríkari, beinskeyttari, pólitískari, efnismeiri jafnvel, bæði af því að sýningin er löng og svo er svið Finns Arnars Arnarsonar svo haglega gert að enginn [...]

Saga af görpum

2019-08-08T14:56:17+00:0013. febrúar 2010|

Gerpla Halldórs Laxness, saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Bessasonar Kolbrúnarskálds, er glæsilegt verk sem hefur margt til að laða að sér breiðan hóp lesenda: mikla atburðarás og lifandi lýsingar á stórum og smáum viðburðum, spennu og ofbeldi, óleyfileg erótísk sambönd, einlæga vináttu og heitar ástir. Hún hefur fornlegan stíl, er fyndin og hefur djúpan [...]

Ég elska hana, hún elskar annan mann

2020-01-31T15:44:55+00:0015. mars 2009|

Þrettándakvöld er eitt alskemmtilegasta leikrit Vilhjálms Shakespeare, hryllilega fyndið og fyndnin þar að auki af mörgum tegundum. Þar ber erótíska fyndni hæst en líka er meinleg fyndni áberandi, misskilningsfyndni, kynusli eins og hann gerist fyndnastur hjá þessum yndislega höfundi og svona mætti lengi halda áfram að telja. Þetta verk hefur maður séð í mörgum uppsetningum og [...]