Þú ert hér://Tag: Jórunn Sigurðardóttir

Áskorunin að skrifa um fordæmda sögulega persónu

2026-05-21T10:38:28+00:0021. maí 2026|

Kristín Svava Tómasdóttir: Fröken Dúlla, ævisaga Benedikt 2025 Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af sínum nánustu, er meðal alræmdari persóna í íslenskri 20. aldar sögu. Flestir sem ólust upp um og eftir miðja síðustu öld hafa heyrt sögur af þessari kerlingu sem elti uppi ungar stúlkur í Reykjavík sem sóttust eftir að skemmta sér þar sem [...]

List er að ljúga ekki of mörgu

2024-09-19T11:33:47+00:0019. september 2024|

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Oddný. Benedikt 2023. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2024. Síðastliðið haust sendi Kristín Ómarsdóttir frá sér fyrstu bók skáldaðrar ævisögu langömmu sinnar, Oddnýjar Þuríðar- og Þorleifsdóttur. Þetta er í fyrsta sinn sem Kristín skrifar bók um persónu sem hefur verið til. Hún hefur þó nefnt í viðtölum að skáldskaparhugmyndir hennar [...]

Að elska og að anda á fljúgandi fart

2023-04-12T09:32:25+00:0011. apríl 2023|

Pedro Gunnlaugur Garcia: Lungu. Bjartur, 2022. 391 bls. Úr Tímarit Máls og menningar, 2. hefti 2023.   Það er ekki létt verk að skrifa gagnrýni um skáldsögu sem þegar hefur hlotið verðlaun sem sú besta sem kom út á síðasta ári. Eftir sem áður er það þó skylda gagnrýnanda að rýna vandlega í innihald og [...]

Hvað merkir þetta auma líf? 

2021-02-17T14:41:29+00:0018. febrúar 2021|

Halldór Armand. Bróðir. Mál og menning, 2020. 292 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2021 Bróðir er fjórða skáldsaga Halldórs Armands Ásgeirssonar sem merkir bækur sínar höfundarnafninu Halldór Armand. Umfjöllunarefni hans hafa verið samtíminn, en í fyrri bókum sínum, báðum sögunum í Vince Vaughn í skýjunum og í skáldsögunum Drón og Aftur og [...]

Allt í einni sögu en þó fyrst og fremst hún sjálf eða … að komast í skjól frá veröldinni og brjótast út úr því

2019-11-13T16:23:52+00:0019. nóvember 2019|

Ófeigur Sigurðsson. Heklugjá. Mál og menning 2018. 413 bls. Heklugjá Ófeigs Sigurðssonar er mikil bók að vöxtum og ber undirtitilinn „Leiðarvísir að eldinum“, sem ásamt kápumyndinni af símynstruðum hvirfli í miseldrauðum litum, gefur tilvonandi lesanda til kynna að hér sé fjallað um náttúruöfl, um frumefnið eldinn sem eyðir og skapar í sömu svipan, að minnsta [...]

Risavaxið áramótaskaup á alþjóðlegum skala og stórviðvörun

2019-05-16T11:47:27+00:0019. febrúar 2019|

Þórarinn Leifsson. Kaldakol. Mál og menning, 2017. 280 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Dystópíur eða ólandssögur hafa ekki verið fyrirferðarmiklar í íslenskum bókmenntum en eru þó kannski fleiri en margir ætla. Slíkar sögur hafa gjarnan komið í kippum, litlum kippum reyndar, tvær til þrjár, í kjölfar þess að ákveðnir þættir festu [...]

Stigagangur lífsins: Dæmisaga

2019-05-16T11:57:08+00:0031. maí 2018|

Friðgeir Einarsson. Formaður húsfélagsins. Benedikt, 2017. 208 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2018 Formaður húsfélagsins er ekki beinlínis réttnefni á þessari fyrstu skáldsögu Friðgeirs Einarssonar. Sagan fjallar ekki um formann húsfélags, þessarar mikilvægu en oft svo óþolandi stofnunar í fjölbýlishúsum. Og eftir því sem best verður séð þá bærast heldur engar þrár [...]

Nýtt líf í skugga dauðans

2019-06-19T11:03:17+00:0028. október 2012|

Bíómynd Akis Kaurismäki I hired a contract killer (Ég réð mér leigumorðingja, 1990) var minnilega skemmtileg þó stutt væri (tæpar 80 mínútur). Agli Heiðari Antoni Pálssyni og áhöfn hans hjá Leikfélagi Akureyrar, sem völdu þetta verk, er því tvöfaldur vandi á höndum: að búa til frumlega og skemmtilega leiksýningu sem ekki gerir bíómyndinni skömm til [...]