Þú ert hér://Tag: Jónmundur Grétarsson

Leiðin að mennskunni

2026-10-17T14:00:20+00:0017. október 2026|

Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða [...]

Sögulegt verk í sögulegri sýningu

2023-03-17T12:08:33+00:0017. mars 2023|

Leikhópurinn Elefant frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum eigin leikgerð af skáldsögu Halldórs Laxness frá 1943–6, Íslandsklukkunni, í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Leikstjóri er Þorleifur Örn Arnarsson sem einnig gerir leikgerðina ásamt Bjarti Erni Bachmann, Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og leikhópnum. Íslandsklukkan er stór skáldsaga með fjölmörgum persónum og miklum atburðum sem ýmist eru sögulegir eða skáldaðir og [...]

„Vellandi hatur, svellandi ást“

2021-09-06T11:04:14+00:005. september 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi eftir æðilanga bið leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Þorleifur leikstýrir líka en dramatúrg er Hrafnhildur Hagalín. Einföld en lúmsk leikmyndin er Ilmar Stefánsdóttur, myndband er á vegum Nönnu MBS og Signýjar Rósar Ólafsdóttur en rosalegt búningafylliríið er verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur og Urðar Hákonardóttur. Flókna [...]

Inspired by Iceland?

2019-09-16T09:12:41+00:0014. september 2019|

Independent Party People / Mynd : Owen Fiene Þau gera grimmt en hollt gys að löndum sínum og sjálfum sér, ungu Sálufélagarnir í verki sínu Independent Party People í Tjarnarbíó (sem er að mestu leikið á íslensku þótt enskan sé annað tungumál verksins). Stofnendur hópsins og forsprakkar sýningarinnar eru þær Nína Hjálmarsdóttir sviðshöfundur [...]

Að skammast sín – en fyrir hvað?

2019-04-30T12:28:35+00:0012. september 2017|

Í gærkvöldi var frumsýnt í Kúlu Þjóðleikhússins verk sem að efni og uppsetningu brýtur að ýmsu leyti blað í íslenskri leikhússögu. Verkið heitir Smán og er eftir Bandaríkjamanninn Ayad Akhtar sem hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir það árið 2013. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann en þýðendur eru Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson. Smán gerist í New York á [...]

Glanni glæpur slær loksins í gegn

2019-05-27T13:46:45+00:0015. september 2014|

Glanni glæpur, önnur þekktasta persóna Latabæjarsjónvarpsþátta Magnúsar Scheving,  þreytist seint á að ergja sig á fólki sem stundar íþróttir og borðar hollan mat. Maður hefði kannski haldið að hann lærði eitthvað á síendurteknum misheppnuðum tilraunum sínum til að fá íbúa Latabæjar ofan af þessu en – nei. Hann er enn að og nú (aftur) á [...]