Þú ert hér://Tag: Jökull Smári Jakobsson

Íbúðabrask á Akureyri

2026-10-16T14:07:58+00:0011. október 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu Fasteignamartröðina eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar sem einnig þýðir verkið og staðfærir. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynd og búninga og Fjölnir Gíslason um ljósahönnun og myndbandagerð. Jóhannes Damian R. Patreksson samdi tónlistina en Gunnar Sigurbjörnsson sá um hljóðhönnun. Harpa Birgisdóttir ber ábyrgð á [...]

… og svo kom rauða blaðran

2026-05-03T21:22:00+00:003. maí 2026|

Þeir hafa margt lært af meisturum látbragðsleiksins, piltarnir tveir sem frumsýndu verk sitt Innblástur í Tjarnarbíó í dag, til dæmis varð mér stundum hugsað til Nútímans eftir Chaplin og ekki leiðum að líkjast. Við erum stödd í verksmiðju, kannski að næturlagi. Einn vaktmaður (Nikulás Hansen Daðason) gengur sínar föstu eftirlitsferðir um svæðið uns hann verður [...]

Jóhanna er víða

2024-08-02T11:25:10+00:002. ágúst 2024|

Grindvíski leikhópurinn Gral frumsýndi í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó leikverkið Ég er ekki Jóhanna af Örk eftir Berg Þór Ingólfsson. Katrín Guðbjartsdóttir leikstýrir en Áróra Bergsdóttir og Emilía Bergsdóttir hafa skapað mjög sannfærandi stúdíó handa persónum verksins. Fjölnir Gíslason hannaði lýsinguna sem var yfirleitt einföld en stóð sig vel þegar á reyndi. Hún (Urður [...]

Hver er náungi minn?

2024-08-02T11:46:38+00:0019. júlí 2024|

Anna Karenina, söguhetja Tolstojs í samnefndri skáldsögu, er líklega frægasta (bókmennta)persónan sem deyr með því að henda sér fyrir járnbrautarlest, en það hafa margir farið að dæmi hennar, bæði í bókmenntum og raunveruleikanum. Í gærkvöldi var frumsýnt hjá Afturámóti í Háskólabíó nýtt leikverk eftir Adolf Smára Unnarsson, Undir, sem snýst um slíkt tilvik. Magnús Thorlacius [...]

Hvernig var bragðið?

2024-01-19T13:28:41+00:0019. janúar 2024|

Það er ekki beinlínis þægilegt áhorfs og áheyrnar, leikritið sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn Adolfs Smára Unnarssonar. Satt að segja hefði mér þótt erfitt að ímynda mér að ég þyrfti nokkurn tíma að taka afstöðu til jafn ólíklegs viðburðar og mannáts í leikdómi. En danska verðlaunaverkið Kannibalen eftir Johannes Lilleøre frá [...]

Ha? Nei! Já, akkúrat!

2023-06-21T14:09:34+00:0019. maí 2023|

Frumsýningargestir Tjarnarbíós í gærkvöldi gengu inn í gufubað. Salargólfið var fljótandi í volgu vatni sem persónurnar, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Jökull Smári Jakobsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir, böðuðu fætur sína í, skvettu hvert á annað og sulluðu svolítið. Enda heitir verkið Lónið og vísar til þess að nú er enginn staður á landinu eftirtektarverður eða heimsóknar [...]

Að glíma við sitt einka tígrisdýr

2023-01-09T13:43:23+00:008. janúar 2023|

Hvíta tígrisdýrið / Teikning: Pétur Atli Antonsson Hinn góði leikhópur Slembilukka frumsýndi í gær í samstarfi við Borgarleikhúsið barnasýninguna Hvíta tígrisdýrið eftir Bryndísi Ósk Þ. Ingvarsdóttur á Litla sviði hússins. Bryndís Ósk hannar líka búninga og leikmyndina sem er engin smásmíði en Eygló Höskuldsdóttir Viborg sér um hljóðmyndina og Kjartan Darri Kristjánsson um [...]

Tveggja mála fjölskyldudrama

2022-11-11T21:25:45+00:0011. nóvember 2022|

Á Íslandi eru tvö opinber tungumál en annað þeirra, íslenska táknmálið, sést ekki oft í stóru leikhúsum landsins. Það gerðist þó á frumsýningu leikritsins Eyju eftir Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Sóleyju Ómarsdóttur á litla sviði Þjóðleikhússins á fimmtudaginn í leikstjórn Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. Að sýningunni stendur O.N., sviðslistahópur sem samanstendur af döff og heyrandi listafólki, [...]

Ungt og leikur sér

2019-05-10T14:48:34+00:0011. nóvember 2015|

Við fórum í fyrsta skipti á Ungleik í Borgarleikhúsinu í gær og fannst satt að segja talsvert til um þá reynslu. Þarna voru leikin fimm stutt verk eftir jafnmarga höfunda, leikararnir og leikstjórarnir voru úr sama áhugamannahópnum um leiklist og það er mikils að vænta af þessu unga og ástríðufulla fólki. Fyrsta verkið, Sýslumaðurinn í [...]