Þú ert hér://Tag: Ísidór Jökull Bjarnason

Vítahringur hjónaerja

2026-10-16T14:46:54+00:0016. október 2026|

Rúmlega fertuga stofudramað Djöflar eftir sænska leikskáldið Lars Norén var frumsýnt fyrir viku á Nýja sviði Borgarleikhússins en ég sá aðra sýningu á verkinu í gærkvöldi. Þýðandi er Hlín Agnarsdóttir en leikstjóri Stefán Jónsson. Börkur Jónsson hannaði leikmyndina sem var mjög smart og líka furðu yfirgripsmikil, þar var – á einu gólfi – eldhús og [...]

Kvöldstund með Heiðari snyrti

2024-01-26T10:47:50+00:0020. janúar 2024|

  „Þú gætir kallað umsögnina þína Veislu undir grjótvegg,“ sagði fylgdarmaður minn þegar við vorum sest inn í Litla sal Borgarleikhússins í gærkvöldi og virtum fyrir okkur glæsilega sviðsmynd Barkar Jónssonar, háa, grófa og margbrotna Drápuhlíðargrjótvegginn sem húsbóndinn á heimilinu, Ingi (Sigurður Þór Óskarsson), skreytir með rauðum ljósaklösum meðan gestir á Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson [...]

Hver er ég?

2023-10-03T10:11:25+00:0023. september 2023|

María Reyndal frumsýndi í gærkvöldi leikverk sitt Með Guð í vasanum á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sérkennilega leikmyndina hannaði Brynja Björnsdóttir sem einnig sá um búninga en Pálmi Jónsson sá um lýsingu. Hljóðmyndin, sem skiptir svo gríðarlega miklu máli í sýningunni, var á vegum Ísidórs Jökuls Bjarnasonar. Sveinn Ólafur Gunnarsson aðstoðaði við handrit og lék líka [...]

Ha? Nei! Já, akkúrat!

2023-06-21T14:09:34+00:0019. maí 2023|

Frumsýningargestir Tjarnarbíós í gærkvöldi gengu inn í gufubað. Salargólfið var fljótandi í volgu vatni sem persónurnar, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Jökull Smári Jakobsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir, böðuðu fætur sína í, skvettu hvert á annað og sulluðu svolítið. Enda heitir verkið Lónið og vísar til þess að nú er enginn staður á landinu eftirtektarverður eða heimsóknar [...]

Glaður á góðri stundu

2023-01-03T10:27:57+00:0031. desember 2022|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á Nýja sviði Borgarleikhússins leikritið Mátulegir sem Thomas Vinterberg samdi upp úr eigin kvikmyndahandriti ásamt Claus Flygare. Þórdís Gísladóttir þýðir prýðilega. Leikstjóri er sjálfur leikhússtjórinn, Brynhildur Guðjónsdóttir, helst til flókna leikmynd gerir Heimir Sverrisson, Filippía Elísdóttir sá um búninga, Þórður Orri Pétursson um lýsingu en Ísidór Jökull Bjarnason um tónlist [...]

Hamingjudag eftir hamingjudag

2022-11-06T13:18:37+00:006. nóvember 2022|

Af einhverri tilviljun hafði ég hvorki séð né lesið Hamingjudaga Samuels Beckett fyrr en í gærkvöldi, bara lesið um þá og það var skrítin lesning: kona í moldarhaug, föst upp að mitti og talar látlaust við mann sem bregst sjaldan við. En í gær sá ég Eddu Björgu Eyjólfsdóttur túlka þessa konu, hana Vinní, á [...]

Fram og aftur frá degi núll

2022-03-01T15:56:29+00:0025. febrúar 2022|

Gísli Örn Garðarsson hljóp sig nánast sleitulaust í gegnum frumsýninguna á Ég hleyp á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þó tók sýningin eina og hálfa klukkustund og allan tímann talaði hann við okkur. Hvað getur maður sagt? Þrekvirki? Eldraun? Undur? Leiktextann samdi Line Mørkeby upp úr samnefndri bók Anders Legarth Schmidt, blaðamanns á Politiken, en [...]