Þú ert hér://Tag: Ingi Bekk

Sælla er að gefa en þiggja

2022-11-28T15:34:10+00:0027. nóvember 2022|

Þau voru að sprengja enn eina gleðisprengjuna í Gaflaraleikhúsinu, Jól á náttfötunum eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem þeir leika líka ásamt Karli Olgeirssyni píanóleikara. Lögin smellnu semja þeir Jón Ólafsson og Máni Svavarsson, ljósunum sem taka fullan þátt í sýningunni stýrir Freyr Vilhjálmsson og leikstjóri er að sjálfsögðu Björk Jakobsdóttir sem líka sér [...]

Sannleikurinn er sagna verstur

2022-05-17T10:19:41+00:0010. apríl 2022|

Leikfélag Reykjavíkur og CommonNonsense frumsýndu í gær samtímafarsann Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson á Nýja sviði Borgarleikhússins. Breiða pallastofu með hringstiga innst upp á efri hæðir skapar Ilmur Stefánsdóttir og hún sér líka um í bland dálítið fríkaða búninga og leikgervi (með Elínu S. Gísladóttur); til dæmis þekkti ég ekki Þórunni Örnu Kristjánsdóttur fyrr en [...]

Njála fyrir alla, konur og kalla

2021-11-06T16:42:00+00:006. nóvember 2021|

Þeir eru alveg ótrúlegir, þeir Hundar tveir í óskilum, Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Eftir alla þjóðarsöguna í tveim sýningum og sögu kvenfólksins í landinu í einni færa þeir okkur Njálu – en á hundavaði, skiljanlega. Þeir segjast í viðtali vera að fara með hana aftur heim því upphaflega hafi hún verið mælt af munni [...]

Hvað kemur með?

2020-09-07T21:55:19+00:005. september 2020|

Oft hef ég velt því fyrir mér á langri ævi hvað ég myndi hafa með mér ef ég þyrfti skyndilega að flýja að heiman vegna hamfara af einhverju tagi. Valið yrði sjálfsagt erfiðara hjá mér en Alex (Kjartan Darri Kristjánsson / Óðinn Benjamín Munthe), söguhetju barnaleikritsins Tréð eftir Söru Martí Guðmundsdóttur og Agnesi Wild sem [...]

Fljúga marglitu fiðrildin

2019-05-27T16:39:52+00:0026. maí 2014|

Wide Slumber for lepidopterists (Djúpur dúr fyrir fiðrildafræðinga??) er tónverk utan um ljóðabók eftir Angelu Rawlings, sviðsett með þrem söngvurum af Söru Martí og VaVaVoom og sýnt í Tjarnarbíó. Tónlistin er eftir Valgeir Sigurðsson, seiðandi og svæfandi eins og hæfir verki um rannsóknir á svefni og lífsferli fiðrilda. Söngur Alexi Murdoch, Sasha Siem og Ásgerðar [...]

Í fréttum var þetta helst

2019-06-19T11:49:28+00:0018. október 2012|

Þau kalla sig VaVaVoom, myndrænt leikhús með bækistöðvar í London og Reykjavík, og í kvöld frumsýndu þau í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu brúðuleikhúsverkið Nýjustu fréttir eftir Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Söru Martí Guðmundsdóttur sem líka leikstýrir, og leikhópinn allan. Þetta er orðalaust verk að heita má, að vísu heyrum við orðaflaum á mörgum tungumálum úr útvarpi og [...]