Þú ert hér://Tag: Hulda Kristín Hauksdóttir

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

Lífið er, karl minn, kabarett

2026-04-20T12:00:02+00:0020. apríl 2026|

Leikhús ókunnuga fólksins sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið söngleikinn Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann var frumsýndur 20.mars en vegna þess að ég komst ekki þá þurfti ég að bíða þangað til í gær með að sjá sýninguna, svo gríðarlega vinsæl er hún. Verkið byggir á Berlínarsögum Christophers Isherwood sem urðu leikrit í höndum Johns van [...]

Undur líkamans

2026-01-24T18:32:13+00:0024. janúar 2026|

Katrín Lóa Hafsteinsdóttir frumsýndi í gær í Tjarnarbíó kórverk sitt Merg; hún stýrði sjálf 28 manna blönduðum kór sem flutti verkið en dramatúrg var Anna Róshildur. Juulius Vaiksoo og Leevi Rauhalahti sköpuðu heillandi sviðshreyfingar, Hekla Kollmar, Ólafur Benedikt Indriðason og Svava Þorsteinsdóttir hönnuðu glæsilegt leiksviðið, Hulda Kristín Hauksdóttir sá um klassíska kórbúningana, Cristina Agueda hannaði [...]

Oh, my Cod!

2025-07-05T10:21:32+00:004. júlí 2025|

Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg.  Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]

Tveggja leiksýninga kvöld

2024-06-26T21:14:41+00:0026. júní 2024|

Dúndurfréttir: Nýtt sviðslistahús hefur verið stofnsett í Reykjavík, Afturámóti. Það hefur aðsetur í Háskólabíó og þar í sal 2 sá ég tvö stutt leikverk í gærkvöldi. Hið fyrra, Hansel og Gretel eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur hafði ég séð áður á Ungleik í Tjarnarbíó í fyrra, hið síðara var Svar við bréfi Petru eftir Gígju Hilmarsdóttur [...]

„Nú er ekkert eins og fyr“

2024-05-10T11:53:48+00:009. maí 2024|

Það eru of margar mis-skyldar hugmyndir í verkinu Sveitabær í bæjarsveit eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur, sem hún frumsýndi í Listaháskólanum í kvöld, en þær mega eiga það að þær voru allar góðar út af fyrir sig! Það er afskaplega gaman að sjá og heyra hvað ungu sviðshöfundarnir okkar eru frjóir, hugkvæmir og vel skrifandi. Leiktexti [...]