Þú ert hér://Tag: Högni Sigurþórsson

Leikur án orða

2022-10-24T12:06:05+00:0024. október 2022|

Leikhópurinn Baun í bala frumsýndi fyrir nokkru nýja algrímusýningu í Tjarnarbíó sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir ásamt Orra Hugin Ágústssyni. Verkið heitir Hríma og segir frá fullorðinni einsetukonu, Hrímu (Aldís Davíðsdóttir) sem býr á afskekktum stað í heldur ótótlegu húsnæði gerðu mestmegnis úr teppum og lökum. Þar hefur hún lokað sig inni með gömlum minningum – [...]

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

Anna og Hanna á tímaflakki

2020-02-17T09:46:51+00:0015. febrúar 2020|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í Kúlunni Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson undir stjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Þar gefst lítill tími til að halla sér aftur og slaka á því hvað eftir annað þurfa áhorfendur að taka ákvörðun um framhald atburðarásarinnar og sýna vilja sinn með því að styðja á hnapp [...]

Bestuvinaafmæli Odds og Sigga

2019-05-27T11:23:15+00:005. mars 2018|

Ég sá í morgun leikarana og fjörkálfana Odd Júlíusson og Sigurð Þór Óskarsson halda upp á tíu ára vináttuafmæli sitt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir fullan sal af líklega tíu ára börnum. Verkið sömdu þeir bestu vinir ásamt leikstjóra sínum, Birni Inga Hilmarssyni, og hafa verið að sýna víða um land síðan snemma í haust. [...]

Fílías Fogg enn á ferð

2019-05-27T11:35:49+00:0024. janúar 2016|

Hetjur Spaugstofunnar gera það ekki endasleppt við okkur þessi misserin. Við höfum notið upprifjana á glensi þeirra í sjónvarpinu undanfarin laugardagskvöld, þeir eru enn að sýna Yfir til þín á stóra sviði Þjóðleikhússins og í gærdag var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar á sögunni Umhverfis jörðina á 80 [...]

Kuggur, Mosi, mæðgurnar og leikhúsvélin

2019-05-22T11:08:05+00:0021. febrúar 2015|

Hugmynd Sigrúnar Eldjárn að bókunum um Kugg eru eiginlega á heimsmælikvarða. Bara það að láta sér detta í hug vinahóp sem samanstendur af einum strákling, smáveru með ofurkraft, sprækri kerlingu og miðaldra dóttur hennar, sem líka er hugmyndaríkur uppfinningamaður, er svo galin að hún hlýtur að virka. Enda hefur hún virkað árum saman í bókaflokknum [...]

Að sjá með hjartanu

2019-06-04T08:07:03+00:006. apríl 2014|

Í gærdag frumsýndi Þjóðleikhúsið í Kúlunni leikgerð Stefáns Halls Stefánssonar á Litla prinsinum eftir Antoine de Saint-Exupéry undir stjórn Stefáns Halls. Íslensk börn munu einkum þekkja þetta verk úr barnatíma Sjónvarpsins þar sem er víst unnið með stök atriði úr sögunni en þá þætti hef ég ekki séð. Sagan er heimskunn enda bæði falleg og [...]

Maður og náttúra

2019-06-19T12:08:22+00:0027. apríl 2012|

Brúðuheimar og Bernd Ogrodnik frumsýndu í gær í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og í samvinnu við Listahátíð leikgerð hans af Gamla manninum og hafinu, frægri nóvellu Ernests Hemingway sem hefur komið út á íslensku í þýðingu Björns O. Björnssonar. Hvergi er getið á upplýsingablaði með sýningunni hvort það er hans þýðing sem notuð er eða hvort [...]

Jebbs

2020-01-30T11:51:37+00:0014. mars 2010|

Fíasól er flutt í Kúlu Þjóðleikhússins og þangað geta krakkar heimsótt hana. Hún er nefnilega að ná sér eftir flensuna og getur ekki komið út að leika. En við megum vel koma inn til hennar og sjá hana leika sér í hosiló við Ingólf Gauk og Pippu systur. Ég býst við að einhverjum ungum leikhúsgesti [...]