Þú ert hér://Tag: Gunnar Karel Másson

Breytingin er eini fastinn

2025-02-04T16:19:37+00:001. febrúar 2025|

Það mætti halda að Marmarabörn hefðu verið að hugsa um nýliðið ár þegar þau skírðu sýninguna sína Árið án sumars, alla vega eins og það blasti við okkur hér á suðvesturhorninu. En þau voru búin að hugsa þennan titil æði lengi áður en kom að því ári, enda eru þau með í huga sumarið 1816 [...]

„Vaðlaheiðargöng eru æði“

2024-02-19T10:38:02+00:003. febrúar 2024|

Það er eiginlega óhjákvæmilegt að hugsa til skessunnar í ævintýrinu um Búkollu þegar maður veltir Vaðlaheiðargöngum fyrir sér, mestu framkvæmd Íslandssögunnar, eins og segir i kynningu á leikritinu um hana, Vaðlaheiðargöngum, sem frumsýnt var á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi á vegum leikhópsins Verkfræðinga. Hljóðheimur Gunnars Karels Mássonar sem mætti okkur gat á köflum vel [...]

Eftir flóðið

2020-01-21T12:02:20+00:0021. janúar 2020|

Eyður / Mynd: Owen Fiene Samkvæmt verki Marmarabarna, Eyðum, sem ég sá á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi, byrjar maðurinn aftur sem safnari eftir Flóðið. Á sviðinu eru fimm mannleg reköld á eyðilegri strönd þegar tjaldið er dregið frá, ekkert er að sjá í umhverfi þeirra nema misjafnlega stórir plastbútar í ýmsum litum. [...]

Ef þetta er síðasta nóttin …

2019-05-27T15:41:53+00:0018. maí 2019|

Sviðslistahópurinn Óþekkt frumsýndi í gærkvöldi tón- og leikverkið Iður eftir Gunnar Karel Másson í Tjarnarbíó. Höfundur leikstýrði sjálfur en tónlistarstjóri var Helgi Rafn Ingvarsson. Gunnar Karel vill segja sögu óvenjulegs manns og til þess þarf hann óvenjulegar aðferðir. Maðurinn er Mark Kennedy, breskur lögregluþjónn sem gekk í mótmælahópa í dulargervi, þóttist vera róttækur aðgerðasinni, notaði [...]

Sjónarspilið samtíminn

2019-05-20T17:22:37+00:0014. mars 2015|

Minnisvarði 16 elskenda í Tjarnarbíó er skrautlegur gjörningur með fallegu fólki en sýningin hefur ekki eins skýrt afmarkað efni og tilgang og fyrri sýningar hópsins sem ég hef séð. Satt að segja datt mér í hug í gærkvöldi að ég væri orðin of gömul fyrir þau. Sýningin hefur fengið talsvert mikið hól frá gagnrýnendum, enda [...]

Hættu nú alveg …

2020-01-24T16:35:57+00:0018. maí 2010|

Það var frekar tónlistin en nafnið sem gerði að ég tengdi Tvo fátæka pólskumælandi Rúmena strax við bíómyndir Emirs Kusturica, til dæmis Svartan kött hvítan kött. En það var ekki svo galið, því sú tenging sendi mig rakleiðis inn í réttan heim fyrir þetta tryllta leikverk eftir pólska leikskáldið Dorotu Maslowsku sem nú er sýnt [...]

Fokking fokk – sorrí

2020-01-30T15:29:01+00:009. janúar 2010|

Myndin á plakati leikritsins Munaðarlaus sem var frumsýnt í Norræna húsinu í gær (8.1.10) virðist við fyrstu sýn alveg út í hött, en hún öðlast mikinn merkingarauka þegar maður er búinn að sjá sýninguna. Á myndinni eru tvö lítil systkini, dálítið stærri stelpa, alvarleg og ábyrg á svip, og skælbrosandi yngri bróðir. Þau eru í [...]