Þú ert hér://Tag: Gamla bíó

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

Lifendur þegja, dauðir syngja

2019-05-16T17:03:40+00:0028. ágúst 2015|

Dagur tvö á Lókal, leikhúsreynslan víkkar út, jafnvel yfir í annan heim. Síðdegis sáum við Krísufund Kriðpleirs á Dansverkstæðinu við Skúlagötu og um kvöldið When I Die sem kemur frá Kaserne í Basel, draugasögu með tónlist eftir Thom Luz. Í báðum tilvikum var sjón sögu ríkari. Ekki höfðum við áður hitt á sýningar Kriðpleirs frekar [...]

Edda, Bibba og Túrilla

2019-05-17T14:17:14+00:0017. apríl 2015|

Við fórum loksins að sjá Edduna hennar Eddu Björgvinsdóttur í Gamla bíó í gærkvöldi. Það var sýning sem kom okkur meira á óvart en við áttum von á. Áður en sýningin hófst fengum við að sjá ótal brot á tjaldi frá ferli Eddu í sjónvarpi og kvikmyndum, þau voru hljóðlaus en mörg þeirra kannaðist ég [...]

Vormenn Íslands á 21. öld

2019-05-20T17:17:36+00:0010. mars 2015|

Herranótt Menntaskólans í Reykjavík setur nú upp leiksýningu í 170. sinn. Þau völdu 125 ára gamalt leikverk, Vorið vaknar eftir Frank Wedekind, þó ekki upprunalega leikritið heldur rokksöngleik sem Duncan Sheik og Steven Sater sömdu upp úr því á ensku laust fyrir aldamótin 2000. Tónlistin er kraftmikil og skemmtileg og flytur þetta tímalausa efni áreynslulaust [...]

Píkur fimm á palli inni

2019-06-12T14:46:21+00:0019. október 2013|

Það er svo góður gangur í sýningum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu að til vandræða horfir. Því hefur leikhússtjórinn nú komið sér upp annexíu í Gamla bíói þar sem frumsýnd var í gærkvöldi uppsetning Kristínar Jóhannesdóttur áKristín Jóhannes eftir Federico Garcia Lorca, í nýrri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar, á ísköldu, álklæddu og stórfenglegu sviði Brynju Björnsdóttur. [...]

Margslunginn veruleiki

2019-06-12T15:22:55+00:008. september 2013|

Frumsýningar þessa sunnudags voru gerólíkar að flestu leyti. Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur sem Soðið svið sýnir í Kúlu Þjóðleikhússins er viðburðaríkt ævintýri, fullt af óvæntum uppákomum og furðulegum persónum en grunnurinn ákaflega raunverulegur. Blik eftir Bretann Phil Porter sem Artik sýnir í Gamla bíó í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur er hversdagsraunsæi í sinni afbrigðilegustu [...]