Þú ert hér://Tag: Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Ekkert er að, ekki neitt

2020-09-07T22:01:55+00:007. september 2020|

Aðstandendur nýju óperunnar, Ekkert er sorglegra en manneskjan, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi, hafa tekið áhorfendum sínum vara fyrir að sjá söguþráð út úr verkinu. Það er „póstdramatískt“, segja þeir Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Adolf Smári Unnarsson leikstjóri og textahöfundur. En það er hrikalega erfitt að byrja ekki undir eins að spinna sögu [...]

Fimm fræknir á hraðnámskeiði í skattsvikum

2020-03-17T17:17:21+00:0013. mars 2020|

Það fór fram merkileg kennslustund í salnum á þriðju hæð Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þar freistuðu félagarnir fimm í leikhópnum Ást og karókí þess að kenna áhorfendum að svíkja undan skatti með því að koma peningunum sínum fyrir í skattaskjóli. Afleitt efni í leiksýningu? Annað kom á daginn! Sýningin Skattsvik Development Group hefst á símtali um [...]

„Hérna er sál mín, sataníski drengur“

2019-03-22T15:26:37+00:0022. mars 2019|

Félagar í Leikfélagi Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð hafa rifjað upp minningar sínar frá yngri árum í vetur og láta þær nú lifna við í skuggalegu rýminu í kjallara skólans. Verkið heitir Ógleymanlegur söngleikur um ást, dauða og vonbrigði og leikstjóri er Stefán Ingvar Vigfússon, margreyndur í starfi með leikfélögum áhugamanna og fagmanna þótt ungur sé. [...]

Þegar ástin er hnefaleikur

2019-03-13T17:15:06+00:0024. ágúst 2018|

Það er sniðug hugmynd á bak við verkið Allt sem er fallegt í lífinu sem Mooz menningarfélag sýndi sem verk í vinnslu í Félagsheimili Seltjarnarness núna í vikunni: Það túlkar samskipti kynjanna sem æfingu í hnefaleik. Sviðið er afmarkað með tvílitri ljósrönd, blárri hans megin, rauðri hennar megin, það er autt fyrir utan tvo stólkolla [...]

„Eins og brú yfir ólgandi flaum“

2019-04-30T14:01:30+00:004. júní 2017|

Það var ansi skemmtilegt að sjá strákana í leikhópnum Ást og karókí fjalla um karlhlutverkið og karlmennskuna svo skömmu á eftir Reykjavíkurdætrum fjalla um kvenlegt hlutskipti í Borgarleikhúsinu. Piltarnir eru ekki komnir eins hátt á strá og stúlkurnar en þeir hafa þó fengið inni fyrir verk sitt, Sýningu um glímu og Slazenger, hjá Leikfélagi Kópavogs [...]

Aftur og aftur

2019-05-08T16:05:21+00:009. mars 2016|

Nemar við Sviðslistadeild Listaháskólans sýndu í gærkvöldi leikritið Þvott í Tjarnarbíó. Þetta er einþáttungur, einfaldur í ytri gerð en lúmskur. Höfundur og leikstjóri er Matthías Tryggvi Haraldsson sem hefur áður vakið athygli fyrir leiktexta. Bak við stóra frítt standandi glerrúðu á sviðinu stendur Jens (Árni Beinteinn) við vinnu sína. Hann ber sápulög á alla rúðuna [...]

„Einræn krútt við hnattrænt tjútt“

2019-05-17T15:56:07+00:0011. apríl 2015|

Nú hefur Stúdentaleikhúsið hreiðrað um sig í nýju leikhúsrými að Strandgötu 75 í Hafnarfirði, ekki langt frá Gaflaraleikhúsinu. Þarna var bílaverkstæði en krakkarnir hafa aldeilis tekið til hendinni. Allt er hvítskúrað, snyrtilega málað, teppalagt og búið skemmtilegu samsafni af húsgögnum og leikmunum úr bílskúrum foreldranna. Þar frumsýndu þau svo í gær leikverkið MIG eftir sjálf [...]