Þú ert hér://Tag: Fjölnir Gíslason

Íbúðabrask á Akureyri

2026-10-16T14:07:58+00:0011. október 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu Fasteignamartröðina eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar sem einnig þýðir verkið og staðfærir. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynd og búninga og Fjölnir Gíslason um ljósahönnun og myndbandagerð. Jóhannes Damian R. Patreksson samdi tónlistina en Gunnar Sigurbjörnsson sá um hljóðhönnun. Harpa Birgisdóttir ber ábyrgð á [...]

Hjartsláttur leikhússins

2026-09-28T12:53:42+00:0028. september 2026|

Leikhópurinn Baksviðs frumsýndi í gær í Tjarnarbíó Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu eftir Vigdísi Gunnarsdóttur. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir sem líka leikur í sýningunni. Sviðsmynd og búninga hannaði Rebekka A. Ingimundardóttir en lýsinguna Fjölnir Gíslason og tónlist og leikhljóð skapaði Íris Thorarins. Við förum í leikhús til að sjá fullbúna leiksýningu en í Heimsókninni í [...]

„Dauðinn trompar allt“

2026-02-14T12:45:28+00:0014. febrúar 2026|

Kammeróperan frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó „eina af vinsælustu óperum sögunnar í glænýjum búning“ eins og segir í kynningartexta, nefnilega Carmen eftir Georges Bizet í kammerútsetningu Tscho Theissing. Adolf Smári Unnarsson leikstýrir og þýðir líka texta Meilhacs og Halévys en söguna skrifaði Prosper Mérimée upphaflega. Andri Unnarson skapar hugkvæma umgerð utan um óperuna og hannar [...]

Feðraveldið fær á baukinn

2025-09-27T16:09:46+00:0027. september 2025|

Leikfélagið Silfurskeiðin frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare í úrvalsþýðingu Þórarins Eldjárn. Leikstjórar eru María Ellingsen og Magnús Thorlacius, og Eyja Gunnlaugsdóttir kom til aðstoðar þegar Magnús þurfti að hverfa frá; búninga og leikmynd sér Íris Ólafsdóttir um, Sóley Ólafsdóttir samdi sviðshreyfingar, Ronja Jóhannsdóttir samdi tónlistina og skapaði hljóðmyndina en Fjölnir Gíslason [...]

Jóhanna er víða

2024-08-02T11:25:10+00:002. ágúst 2024|

Grindvíski leikhópurinn Gral frumsýndi í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó leikverkið Ég er ekki Jóhanna af Örk eftir Berg Þór Ingólfsson. Katrín Guðbjartsdóttir leikstýrir en Áróra Bergsdóttir og Emilía Bergsdóttir hafa skapað mjög sannfærandi stúdíó handa persónum verksins. Fjölnir Gíslason hannaði lýsinguna sem var yfirleitt einföld en stóð sig vel þegar á reyndi. Hún (Urður [...]

Hver er náungi minn?

2024-08-02T11:46:38+00:0019. júlí 2024|

Anna Karenina, söguhetja Tolstojs í samnefndri skáldsögu, er líklega frægasta (bókmennta)persónan sem deyr með því að henda sér fyrir járnbrautarlest, en það hafa margir farið að dæmi hennar, bæði í bókmenntum og raunveruleikanum. Í gærkvöldi var frumsýnt hjá Afturámóti í Háskólabíó nýtt leikverk eftir Adolf Smára Unnarsson, Undir, sem snýst um slíkt tilvik. Magnús Thorlacius [...]

Maðurinn er alltaf einn

2024-04-20T14:08:58+00:0020. apríl 2024|

Það er orðið talsvert langt síðan Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi verkið X eftir Alistair McDowall á Nýja sviði en atvikin hafa hagað því þannig að ég sá það ekki fyrr en í gær. Jón Atli Jónasson hefur gert á því ágæta þýðingu; hæfilega geimskipslega leikmynd og búninga hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir en ágeng lýsingin er verk [...]

Hvernig var bragðið?

2024-01-19T13:28:41+00:0019. janúar 2024|

Það er ekki beinlínis þægilegt áhorfs og áheyrnar, leikritið sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn Adolfs Smára Unnarssonar. Satt að segja hefði mér þótt erfitt að ímynda mér að ég þyrfti nokkurn tíma að taka afstöðu til jafn ólíklegs viðburðar og mannáts í leikdómi. En danska verðlaunaverkið Kannibalen eftir Johannes Lilleøre frá [...]

Fátt að frétta úr hulduheimum

2023-06-21T13:40:11+00:003. júní 2023|

Bláir englar frumsýndu í gærkvöldi í samstarfi við Tjarnarbíó einleikinn Hulið eftir Sigríði Ástu Olgeirsdóttur með elegant tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Sigríður Ásta leikur sjálf en leikstjóri hennar er Halldóra Rósa Björnsdóttir. Leikmyndina unnu þær saman, leikstjórinn og leikarinn, hún er mjög dökk fyrir utan ljósa steinhnullunga á gólfinu og búningur Sigríðar Ástu, afar smekkleg [...]

Þegar orð eru óþörf

2022-05-17T10:21:13+00:008. apríl 2022|

Það eru rúm níu ár síðan ég sá Hjartaspaða í Gaflaraleikhúsinu, fyrstu leiksýninguna sem ég hafði séð þar sem leikið var með heilgrímur. Þó að afar vel tækist til hefur leikurinn ekki verið endurtekinn, svo ég viti til – fyrr en nú og þá af sömu aðilum, Skýjasmiðjunni. Hún frumsýndi um síðustu helgi verkið Hetju [...]