Þú ert hér://Tag: Elvar Geir Sævarsson

Maður og kona á 21. öldinni

2020-09-22T12:19:11+00:0021. september 2020|

Það er grímuskylda í Þjóðleikhúsinu og mér fannst það talsverð reynsla að sitja heila leiksýningu með grímu fyrir vitunum. En maður gerir hvað sem er, þegjandi og hljóðalaust, ef það stuðlar að því að leikhúsin haldist opin. Vissulega varð mér dálítið þungt um andardráttinn undir sýningunni en kannski var það ekki gríman heldur tilfinningaspennan á [...]

Gömul sár gróa ekki hjálparlaust

2020-03-10T14:08:47+00:0010. mars 2020|

Bernd Ogrodnik frumsýndi verk sitt Brúðumeistarann í Brúðuheimum Þjóðleikhússins síðastliðinn laugardag undir styrkri og hugmyndaríkri stjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. María Helga Guðmundsdóttir þýðir textann. Ég sá aðra sýningu í gær. Brúðuheimar eru uppi í turni leikhússins og þarf að príla upp marga stiga til að komast þangað, en þar hefur Bernd skapað marga töfraveröldina síðan [...]

Arfleifð Þorvalds Þorsteinssonar

2019-12-22T14:25:24+00:0022. desember 2019|

Íslenskt menningar- og listalíf missti afar mikið við lát Þorvalds Þorsteinssonar myndlistarmanns og rithöfundar þegar hann féll frá árið 2013, aðeins rúmlega fimmtugur. Þekktasta verk hans, Skilaboðaskjóðan, hefur tvívegis verið sett á svið í Þjóðleikhúsinu og í gærkvöldi var Engillinn, mósaíkverk unnið upp úr ýmsum öðrum verkum Þorvalds, frumsýnt í Kassanum. Það var gæfuspor að [...]

Fátæktin var mín fylgikona

2019-05-27T11:27:16+00:009. apríl 2017|

Það verður ekki tekið frá honum Þorleifi Erni Arnarssyni, honum tekst að koma manni á óvart. Það tókst honum líka í gærkvöldi, þó nokkrum sinnum. Sýningin var Álfahöllin hin umrædda á stóra sviði Þjóðleikhússins, eins konar revía um leikhúsið – sjálft fyrirbærið Þjóðleikhús Íslendinga, bæði hús og stofnun – og samfélag okkar á þessari stundu. [...]

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-27T11:37:02+00:0027. desember 2015|

Það má teljast djarft að setja upp Sporvagninn Girnd um miðjan ískaldan vetur í Þjóðleikhúsi Íslendinga, þetta heita og sveitta verk sem snýst um ástríður og gerist í þrúgandi hita Suðurríkja Bandaríkjanna. Stefán Baldursson leikstjóri er þó hvergi banginn og hefur með sér þétta sveit kvenna, aðstoðarmanninn Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikmyndahönnuðinn Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur og [...]

Að rokka á ystu nöfum

2019-05-10T14:56:42+00:008. nóvember 2015|

Ég gæti vel trúað því að fleiri áhorfendur Spaugstofunnar en ég hafi verið búnir að gleyma hvernig það er að hlæja dátt – missa hreinlega stjórn á hlátrinum. Finna gleðibólurnar stíga upp úr iðrunum og springa í loftrörunum á leiðinni upp í munninn svo að allur kroppurinn skelfur! Svona tilfinning greip mig nokkrum sinnum þar [...]