Þú ert hér://Tag: Einar Kárason

Salóme segir frá

2023-04-24T09:56:09+00:0016. apríl 2023|

Það var brotið blað í sögu Söguloftsins á Landnámssetrinu í Borgarnesi í gærkvöldi. Þá var í fyrsta sinn flutt þar ný skáldsaga sem hvorki er um sögulegar persónur né byggð á heimildum heldur fjallar um fólk í samtímanum, meira að segja fjölskyldu á Akranesi. Hér steig Júlía Margrét Einarsdóttir á fjalirnar og sagði skáldsögu sína [...]

Njáls saga Einars Kárasonar

2023-02-27T11:19:52+00:0027. febrúar 2023|

Það er býsna djarft af Einari Kárasyni að ætla sér að endursegja Njálu alla á tveim tímum. Njála er lengst allra Íslendingasagna, helmingi lengri en þær næstu á eftir (Egla, Grettla og Laxdæla), skiptist í þrjá allólíka hluta, er geysilega mannmörg og viðburðir flóknir og samanfléttaðir þannig að oft þarf að nema staðar og hugsa [...]

Íslenskar bókmenntir – danskættaðar útleggingar

2022-03-30T10:18:26+00:0030. mars 2022|

Einar Kárason Eftir Einar Kárason Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2022   „... heldur skuli prenta þær með stafsetningu Wimmers frá þeim tímum, að Íslendingasögur voru útgefnar í Danmörku til að sanna, að þær væru ritaðar á „oldnordisk“ og afsanna, að þær væru ritaðar á íslenzku.“ (Halldór Kiljan Laxness, TMM 1941) [...]

Mundi og Bóbó hjá ömmu Gógó í Ameríku

2020-06-11T14:41:37+00:007. júní 2020|

Það er ekkert langt síðan við vorum síðast minnt á fjölskylduna í Gamla húsinu í Thulekampinum, Tómas kaupmann, Karólínu spákonu, Gógó dóttur hennar, öll börnin hennar Gógóar og barnabörn, Þjóðleikhúsið setti upp nýjan söngleik byggðan á Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjunni haustið 2016 eins og við munum. Í gærkvöldi voru kynnin við þetta geðríka [...]

Fuglar vonarinnar

2019-05-16T11:46:33+00:0019. febrúar 2019|

Einar Kárason. Stormfuglar. Mál og menning, 2018. 124 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Stormfuglar, stutt skáldsaga eftir Einar Kárason, segir frá baráttu skipshafnar á íslenskum togara í fárviðri um vetur á Nýfundnalandsmiðum. Sagan er byggð á atburðum er urðu í febrúar 1959 þegar fjöldi skipa lenti í erfiðleikum á þeim slóðum. [...]

Grettir í Borgarnesi

2019-03-15T12:25:45+00:004. mars 2018|

Þetta var Borgarneshelgin mikla og væri hægt að fjölyrða um hve glæsilega staðurinn tók sig út í björtu góuveðrinu. Í gær og í dag var ég í einkar ánægjulegum æfingabúðum með kórnum mínum, Senjórítunum, á Hótel Borgarnesi (kom raddlaus til baka), en áður en að þeim kom fórum við hjónin í Landnámssetrið á föstudagskvöldið og [...]

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið [...]

Sturlaður gleðileikur

2019-05-24T15:39:28+00:0010. mars 2016|

Einar Kárason. Skálmöld; Óvinafagnaður; Ofsi; Skáld. Mál og menning 2014; 2001; 2008; 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2016 Skálmöld (2014) Einar Kárason hefur staðið upp frá mögnuðu skáldverki um helstu persónur og atburði Sturlungaaldar; eða öllu heldur staðið upp frá mögnuðu skáldverki um listina að umbreyta atburðum í merkilegar sögur [...]

Skálmöld á Sögulofti

2019-05-20T17:03:21+00:007. mars 2015|

Mynd: Hari Kjartan Ragnarsson, einn af aðstandendum Landnámsseturs í Borgarnesi, sagði eftir frumsýninguna á Skálmöld í gærkvöldi að Einar Kárason væri eins konar húsköttur þeirra á Söguloftinu, hann væri búinn að vera með svo margar sýningar þar. Og miðað við nýju sýninguna er ekkert undarlegt við vinsældir Einars á staðnum. Hann er fantagóður [...]

Ekki mættu allir sem boðið var

2019-05-27T11:38:11+00:0024. nóvember 2014|

Leikhópur Mörtu Nordal og Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur, Aldrei óstelandi, frumsýndi í gærkvöldi leikgerð hennar og leikhópsins af verðlaunabók Einars Kárasonar, Ofsa, í Kassa Þjóðleikhússins. Verkið segir frá aðdraganda eins hörmulegasta glæps Sturlungaaldar, Flugumýrarbrennu, og endar á brennunni sjálfri. Þetta er auðvitað kvikmyndaefni og ekki augljóst hvernig má laga það að litlu sviði og fáum leikendum [...]