Þú ert hér://Tag: Dóra Jóhannsdóttir

Þegar ágætir menn breytast í grasasna

2019-04-29T15:23:20+00:0028. apríl 2019|

Loddarinn (Tartuffe) hans Molières var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi í nýrri bráðskemmtilegri þýðingu Hallgríms Helgasonar og undir stjórn Stefans Metz. Sean Mackaoui sér um leikmynd og búninga eins og áður þegar Stefan hefur leikstýrt hér og Ólafur Ágúst Stefánsson hannar lýsinguna. Manni verður strax hugsað til síðasta verkefnis þeirra þriggja sem var [...]

Þegar bíóið er búið

2019-05-03T15:34:34+00:0012. janúar 2017|

Pulitzer-verðlaunaverkið Ræman eftir Annie Baker var frumsýnt í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Dóru Jóhannsdóttur. Það gerist í samnefndu kvikmyndahúsi, sem enn hefur ekki tekið stafrænni byltingu en notar ennþá gamaldags sýningarvél, og fjallar um þrjá illa launaða starfsmenn hússins og samskipti þeirra. Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) þýðir verkið og staðfærir. Þýðingin [...]

Fjör á Hótel Volkswagen

2019-08-08T15:43:39+00:0025. mars 2012|

Gáta (eða brandari): Hvað komast margir fílar inn í Volkswagen bjöllu? Svar: Fimm. Þrír afturí og tveir frammí. Á Hótel Volkswagen í Borgarleikhúsinu eru líka fimm fílar – ég meina gestir – í skjóli hótelstjórans, Svenna (Hallgrímur Ólafsson). Einn gamall nasisti, Ludvig Rosencrantz (Þorsteinn Gunnarsson), hjónin Adrian Higgins (Halldór Gylfason) og Paul Jenkins (Jörundur Ragnarsson) [...]

Kynusli á Nýja sviði

2019-08-13T14:40:27+00:0012. nóvember 2011|

Leikritið Konan áður eftir Roland Schimmelpfennig sem Þjóðleikhúsið sýndi fyrir fjórum árum er mér minnisstætt þótt mörg hafi maður séð stykkin síðan. Bæði var efnið óvenjulegt (ástkona birtist úr fjarlægri fortíð og hermir loforð um eilífa ást upp á mann annarrar konu) og aðförin að því þannig að áhorfandinn þurfti sífellt að púsla saman og [...]

Leikhúslaugardagur

2019-08-23T16:44:56+00:008. maí 2011|

Ég sá tvær býsna ólíkar sýningar í gær. Önnur var Eldfærin uppi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu, hin frumsýning leikhópsins Ég og vinir mínir á fjöllistaverkinu Verði þér að góðu í Kassa Þjóðleikhússins. Sú fyrri er eins konar sögustund, þar sem tveir meistarar gamanleiksins láta eitt frægasta ævintýri H.C. Andersens lifna á sviðinu. Sú seinni [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]

Er virkilega best að vera heima?

2020-01-30T16:27:10+00:0028. september 2009|

Karli Marx varð einhvern tíma að orði að stórir atburðir mannkynssögunnar gerðust fyrst sem harmleikir en endurtækju sig svo sem farsi. Írska leikskáldið Enda Walsh fer með þessa kenningu alla leið og svolítið lengra í verkinu Heima er best (The Walworth Farce) sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Þar segir [...]

Hið manneskjulegasta

2020-01-30T17:07:32+00:0018. maí 2009|

Mönnum brá svolítið í brún þegar Páll Baldvin gaf sýningunni Húmanímal í Hafnarfjarðarleikhúsinu fimm stjörnur af fimm mögulegum í Fréttablaðinu, vissu ekki alveg hvaðan á þá stóð veðrið af því Páll er venjulega spar á hrósið. Ég sá ekki sýninguna fyrr en í gær, kannski næstsíðustu sýninguna, ef aðdáendum tekst ekki að fá þeim fjölgað, [...]