Þú ert hér://Tag: Bubbi Morthens

„Ég er fífl, ég er skúrkur“

2023-09-13T09:54:16+00:0010. september 2023|

Fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöldi í Kassanum á Ást Fedru, vægðarlausu leikriti eftir breska leikskáldið Söruh Kane í prýðilegri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir, Filippía I. Elísdóttir sér um leikmynd og búninga, Tumi Árnason um tónlist og Ásta Jónína Arnardóttir um ljós og myndbönd. Goðsagan forna um drottninguna sem girntist stjúpson [...]

„Týnd er æra, töpuð er sál“

2021-03-08T13:07:50+00:005. mars 2021|

  Dæmdar konur fyrri alda fá nú uppreist æru hver af annarri. Bubbi Morthens söng um þær í titillagi plötunnar 18 konur og nefndi þar sérstaklega Þórdísi Halldórsdóttur sem vígði Drekkingarhyl árið 1618. Þórdís fékk svo um sig heila skáldsögu síðastliðið haust þegar Þóra Karítas Árnadóttir gaf út Blóðberg. Og nú hefur leikflokkurinn Svipir tekið [...]

Nífaldur Bubbi Morthens

2020-03-17T17:07:50+00:0014. mars 2020|

Tvennt gerir mér einkum erfitt fyrir að skrifa um söngleikinn 9 líf eftir Bubba Morthens og Ólaf Egil Egilsson sem var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Ólafs Egils. Annað er hve margir hafa þegar tjáð sig í svo löngu og litríku máli um sýninguna á Facebook að það verður vandi að [...]

Var Hollywood í Ármúlanum?

2020-01-31T16:42:33+00:002. maí 2008|

Ég vaknaði í morgun með lokasönginn í hausnum: “Ástin er diskó – lífið er pönk”. Kannski verður það smellur. En hápunktur kvöldsins fyrir mig var síðasta lag fyrir hlé, “Hiroshima” eftir Bubba Morthens, sem Nonni rokk (Þórir Sæmundsson) flutti af miklum krafti og reyndar frábærlega vel. Jafnaðist ekki á við höfundinn (hver gerir það?) en [...]