Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Jelena snýr aftur

2019-05-27T12:55:31+00:0013. apríl 2019|

Það er gaman að fara í leikhús og margra leiksýninga minnist ég með sérstakri ánægju. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þær ekki margar sem standa upp úr, fá yfir sig einhverja áru í minningunni, verða jafnvel að goðsögn. Ein þessara örfáu sýninga er Kæra Jelena eftir Ljúdmílu Razúmovskaju sem Þjóðleikhúsið frumsýndi [...]

Stundum verður maður að vera óþekkur

2019-05-21T14:52:57+00:0016. mars 2019|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviðinu söngleikinn Matthildi eftir Roald Dahl (saga), Dennis Kelly (leiktexti) og Tim Minchin (tónlist og söngtextar) í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir af sínu alþekkta öryggi, tónlistarstjóri er Agnar Már Agnarsson og Lee Proud semur dansana eins og viðbúið var. Þetta er gríðarmikið sjónarspil á einhverri [...]

Leitin að „Eloise“

2019-05-27T12:55:58+00:001. mars 2019|

Friðgeir Einarsson rithöfundur og leikari lagði upp í merkilega leit síðastliðið haust til að fá svar við spurningum sem brunnu á honum. Hann fann furðumörg svör miðað við vanda verkefnisins og segir okkur þau í sýningunni Club Romantica sem var frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þó er það svo að áhorfandinn situr uppi [...]

Næturævintýri

2019-05-08T10:25:19+00:0028. janúar 2019|

Einþáttungarnir sem saman mynda nýskáldasýninguna Núna 2019 í Borgarleikhúsinu gerast allir mjög seint um kvöld eða að næturþeli. Og sem kunnugt er getur þá allt gerst, bæði í vöku og draumi – sem líka eiga það til að renna saman. Rannveig og Axel (Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson) eru í kósídvöl uppi í [...]

„Mamma deyr og pabbi deyr og þú deyrð líka síðar meir“

2019-03-12T16:56:54+00:0025. janúar 2019|

Þessi glaðlega hending hér fyrir ofan er úr frumsömdu vöggukvæði eftir Charlotte Bøving sem hún syngur í uppistandssýningu sinni Ég dey á Nýja sviði Borgarleikhússins um þessar mundir. Þar fjallar hún um dauðann á ótrúlega margvíslegan hátt á ekki lengri kvöldstund, fræðilega og persónulega. Aðstoð við að leikstýra sjálfri sér fær hún frá Benedikt Erlingssyni [...]

Níðingslega lifandi Shakespeare

2019-06-13T18:20:18+00:0030. desember 2018|

Það segir sitt um álit manna og áhyggjur af ástandi heimsins að jólasýningar beggja stóru leikhúsanna skuli fjalla um viðurstyggð harðstjórnar. Í Þjóðleikhúsinu er skopast að Adolf Hitler en í Borgarleikhúsinu er rifjað upp rúmlega 400 ára gamalt leikrit Shakespeares um Ríkharð þriðja, kroppinbakinn sem myrti sér leið til konungdóms á Englandi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir [...]

Að vita hvað ég vil, er málið

2019-03-13T15:31:56+00:0023. nóvember 2018|

Þeir hafa gert það einu sinni enn. Fyrst tóku þeir Íslandssöguna almennt. Svo tóku þeir „öldina okkar“, þá 21. Og af því að þessar sýningar voru báðar kvenmannslausar bæta þeir úr því núna með því að taka kvenfólkið fyrir sérstaklega í sýningu sem þeir kalla … já, auðvitað: Kvenfólk! „Þeir“ eru að sjálfsögðu dúóið Hundur [...]

Taka lífið og sóa því

2019-03-13T15:46:04+00:0010. nóvember 2018|

Við eignuðumst nýtt leikskáld í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Tvískinnung eftir Jón Magnús Arnarsson undir stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Jón Magnús er ljóðaslammari og textinn frjór og orðmargur, iðulega rímaður sem gefur honum óvenjulegt yfirbragð. Þetta er samt ekki rómantískt verk heldur fremur sprottið úr óvægnum heimi djamms, eiturlyfja og hasarmynda enda hittum við [...]

Nóra snýr aftur

2019-05-08T10:35:51+00:0022. september 2018|

„Hvert ætli þú hefðir svo sem getað farið?“ spyr Vilborg Dagbjartsdóttir Nóru Ibsens í ljóðinu „Erfiðir tímar“ (Kyndilmessa 1971) og áreiðanlega hefur þessi spurning sótt á huga margra undanfarin tæp 140 ár. Varð hún vændiskona í Kristjaníu? Skúringakona? Vinnukona? Eða gekk hún í sjóinn? Svo litla trú höfðum við á hugmyndaflugi hennar og seiglu og [...]

Vitið þér enn, eða hvað?

2019-03-13T17:21:20+00:0018. júní 2018|

Það liggur í rauninni beint við að gera eins og Robert Wilson í Eddu, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu í gær á Listahátíð, að byrja hana í svarta myrkri: Ár var alda, það er ekki var, segir í Völuspá, var þar hvorki sandur né sær né svalar unnir … Við sátum sem sé þarna í [...]